Fasteignaleitin
Skráð 7. júlí 2026

Bakkasmári 23

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
182.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
1.039.409 kr./m2
Brunabótamat
109.300.000 kr.
Byggt 1996
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22259632
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Novum fasteignasala kynnir parhús við Bakkasmára 23, 201 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 222-5963.

Um er að ræða eign á góðum stað í hjarta Kópavogs þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Eignin býður upp á stórfenglegt útsýni og hefur verið töluvert endurnýjað á síðustu árum.

Nánari lýsing: 

Efri hæð:
Forstofa er rúmgóð, flísar frá Vídd á gólfi og nýlegur fataskápur.
Herbergi (I&II) inn af forstofu hefur verið sameinað og stúkað af með hurð, sem myndar nú eitt rúmgott herbergi. Auðvelt er að loka rýminu aftur og skipta því upp í tvö herbergi.
Eldhús er fallega endurnýjað í opnu flæði við stofu. Í eldhúsi er glæsileg vinnueyja með spanhelluborði, rafmagni og vönduðum Grohe blöndunartækjum. Á eyju er vönduð Dekton borðplata, auk Silestone borðplötu við vask. Eldhúsið er búið góðum tækjum, þar á meðal innbyggðum tvöföldum ísskáp og vönduðum bakaraofni með innbyggðum örbylgjuofni.
Stofa og borðstofa mynda sérlega bjart og opið alrými með mikilli lofthæð og stórum gluggum. Úr stofunni er útgengt á svalir þar sem hægt er að njóta fallegs og víðsýns útsýnis.
Gestasnyrting er flísalögð með flísum frá Vídd. 
Bílskúr hefur verið breytt í rúmgott og huggulegt herbergi með geymslu, sér salerni og sturtu. Parket er á gólfi en flísar frá Vídd á baðherbergi. Í herberginu er nýlegur og rúmgóður fataskápur. Rýmið hentar vel sem svefnherbergi eða vinnustofa. Áður var aukaíbúð í bílskúrnum og auðvelt er að breyta rýminu aftur, en til staðar er tengi fyrir þvottavél og pláss fyrir eldhúsinnréttingu.

Neðri hæð:
Stigi milli hæða er teppalagður.
Gangur með skápum er rúmgóður og leiðir út á baklóð.
Hjónaherbergi (III) er rúmgott og bjart með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi (IV) er sérlega stórt herbergi sem áður voru tvö herbergi. Auðvelt er að breyta því aftur í tvö herbergi með því að setja upp vegg. 
Baðherbergi er upprunalegt. Flísar á gólfum og baðkar.
Þvottahús er rúmgott með miklu skápaplássi og flísum á gólfi.

Parket og innihurðir eru frá Birgisson og hefur verið lögð áhersla á vandað efnisval og fallegan frágang.

Útisvæði og garður:
Á framlóð er hellulagt og snyrtilegt bílaplan með snjóbræðslukerfi staðsett fyrir framan inngang og bílskúr. Hleðslustöð fyrir rafbíla er við húsið.
Suðurveröld er afgirt og skjólgóð með bæði heitum og köldum potti. Á veröldinni eru timburlagðar tröppur sem liggja niður á baklóðina.
Á baklóð er gróinn garður með grasi og fallegu útsýni.

Fasteignamat næsta árs er 140.200.000 kr. 

Nánari upplýsingar veitir Telma Sif Reynisdóttir lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 773-7223, og með tölvupósti, telma@novum.is
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
NOVUM fasteignasala
novum.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 7 - íbúð 108
Hleðslustöð
Opið hús:23. júlí kl 18:00-18:30
Eskiás 7 - íbúð 108
210 Garðabær
80.3 m2
Fjölbýlishús
313
983 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 201
Bílastæði
Vorbraut 14 íb 201
210 Garðabær
128.8 m2
Fjölbýlishús
423
931 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 104
Bílastæði
Vorbraut 14 íb 104
210 Garðabær
115.6 m2
Fjölbýlishús
322
907 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 102
Vorbraut 14 íb 102
210 Garðabær
70.2 m2
Fjölbýlishús
211
996 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin