Fasteignaleitin
Skráð 24. nóv. 2026

Hafnarstræti 16

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
359.2 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
137.450.000 kr.
Brunabótamat
352.350.000 kr.
Mynd af Víðir Arnar Kristjánsson
Víðir Arnar Kristjánsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1900
Jarðhæð af 3
Garður
Fasteignanúmer
2002624
Landnúmer
100838
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar
Raflagnir
Endurnýjaðar
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Húsið gekkst undir umfangsmikla endurgerð um aldamótin 2000, með áherslu á að varðveita sögulegt yfirbragð þess. Í undirbúningi var gert ráð fyrir lagfæringum á undirstöðum og veggsyllu, endurgerð ytri klæðninga og stigahúss og varðveislu eldri innréttinga og byggingarhluta. Árið 2024 var farið yfir glugga og tréverk ásamt því að húsið var málað að utan, einnig var nokkuð málað innanhúss.
Gallar
Leigutaki lét framkvæma sýnatöku sumarið 2026 og þá mældist verulegt magn myglu í kjallara eignarinnar og hefur sérfræðingur lagt til að ráðist verði í mygluhreinsun þar. Í hornskrifstofu á 1. hæð mældist hátt magn ofnæmisvalda og er mælt með þrifum þar og í nærliggjandi rýmum. Önnur loftsýni komu vel út með tilliti til myglu. Seljandi hefur einnig látið mæla fyrir myglu en þær niðurstöður benda ekki til myglu í húsnæðinu. Hægt er að fá nánari upplýsingar um sýnatökuniðurstöður hjá fasteignasala. Tilboðssgjöfum er bent á að skoða eignina vel með tilliti til þessa.
 
Kvöð / kvaðir
Húsið er í útleigu og rennur núverandi leigusamningur út 1. okt 2027. 
Þar sem seljandi hefur ekki búsetu- eða daglega reynslu af eigninni, hvílir ríkari aðgæslu- og skoðunarskylda á kaupanda. Kaupanda er sérstaklega bent á að skoða eignina mjög vel og fá til þess o.u.b. fagmenn (t.d. ástandsskoðunarmenn) áður en kauptilboð er gert.
VALHÖLL FASTEIGNASALA OG VÍÐIR ARNAR KYNNA HAFNARSTRÆTI 16 – SÖGULEGT HÚS Í HJARTA REYKJAVÍKUR
Hafnarstræti 16 er sögufrægt timburhús frá árinu 1824, staðsett í Kvosinni í næsta nágrenni Lækjartorgs. Húsið á sér ríka sögu og var þekkt undir nafninu hótel Alexandra. Innra skipulag samanstendur af sýningar- og fundarsal, skrifstofum, vinnustofum og stoðrýmum.


Fyrsta hæð
Forstofa og stigagangur
: Inngangur frá Hafnarstræti í forstofu með stiga á aðra hæð.
Sýningar- og fundarsalur: Um 44,4 fm salur er austan meginn á jarðhæðinni. 
Skrifstofa: með aðgengi bæði frá sal og innri gangi.
Bókasafn og seturými: er um 14 fm.
Eldhús: er í miðhluta hæðarinnar
Skrifstofa: Um 14,7 fm skrifstofa í vesturhluta hússins, inn af eldhúsi.
Vinnurými: er í vesturhlutanum.
Snyrtingar: Tvær snyrtingar eru á hæðinni
Bakinngangur
Bakgarður: Afmarkað útisvæði með setuaðstöðu og listaverkagarði á teikningu. Aðgengi er frá sýningar- og fundarsal og bakinngangi.

Önnur hæð
Stigagangur og gangrými: Komið er upp frá aðalinngangi í stigagang sem tengist fundarherbergi og skrifstofuhluta hæðarinnar.
Skrifstofur: Fjögur aðskilin skrifstofu- og vinnurými í austurhluta hæðarinnar. Rýmin tengjast innbyrðis með hurðum.
Fundarherbergi: með aðgengi frá aðalstigagangi og tengingu við vinnustofu.
Vinnustofur: Tvær vinnustofur í vesturhluta hússins, með innbyrðis tengingu. 
Stofa og setuaðstaða: Aðskilin stofa í miðhluta hæðarinnar, inn af sameiginlegu eldhúsi.
Sameiginlegt eldhús: tengir saman stofu, vinnustofu og bakstigagang.
Snyrting: Um 3,3 fm snyrting með salerni og handlaug.
Stoðrými: Ræstiaðstaða.

Rishæð
Opið rými þegar komið er upp stigann
Stórt herbergi vestan meginn sem er nýtt í dag sem gistiaðstaða
Herbergi austan meginn sem er nýtt í dag sem gistiaðstaða

Saga hússins
Hafnarstræti 16 á sér merka sögu sem tengist verslun og mannlífi í miðborg Reykjavíkur um aldir. Húsið er skráð byggt árið 1824, en áður hafði verslunarhús sem kallað var Jóska húsið staðið á lóðinni. Meðal þeirra sem hafa búið í húsinu var Jón Árnason þjóðsagnasafnari. Húsið var upphaflega reist sem verslunar-, pakk- og íbúðarhús. Árið 1853 var settur á það hár miðjukvistur og um 1880 var það hækkað í tvær hæðir. Frá síðari hluta 19. aldar og fram á upphaf þeirrar 20. var Hótel Alexandra rekið í húsinu. Síðar hýsti það skrifstofur Eimskipafélags Íslands eftir brunann mikla árið 1915. Ytra borð hússins var friðlýst árið 1991 og stendur það í dag sem hluti af sögu gömlu Reykjavíkur.
 Umfangsmiklar viðgerðir og endurbygging stóðu yfir árið 2001. Einnig var farið í töluvert viðhald á húsinu árið 2024 á 200 ára afmæli þess.  Húsið er friðlýst og tekur friðlýsingin til ytra borðs þess.

Húsið sameinar yfir 200 ára sögu, einstakan karakter og eftirsótta staðsetningu í hjarta Reykjavíkur. Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að eignast sögufræga fasteign þar sem fjölbreytt rými og iðandi mannlíf miðborgarinnar skapa sérstaka umgjörð um starfsemi.

Nánari upplýsingar veitir:
Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s.8542226 / vidir@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fiskislóð 31
Skoða eignina Fiskislóð 31
Fiskislóð 31
101 Reykjavík
150,7 m2
Atvinnuhúsn.
2
3 þ.kr./m2
480.000 kr.
Skoða eignina Fiskislóð 31
Skoða eignina Fiskislóð 31
Fiskislóð 31
101 Reykjavík
150,7 m2
Atvinnuhúsn.
21
498 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Bíldshöfði 14
Skoða eignina Bíldshöfði 14
Bíldshöfði 14
110 Reykjavík
358,3 m2
Atvinnuhúsn.
445 þ.kr./m2
159.500.000 kr.
Skoða eignina Borgahella 7L
Skoða eignina Borgahella 7L
Borgahella 7L
221 Hafnarfjörður
160 m2
Atvinnuhúsn.
11
399 þ.kr./m2
63.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin