Andri Freyr Halldórsson lgfs & LIND Fasteignasala, kynna til sölu: Falleg tveggja til þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð við Birkiholt 3, 225 Álftanes.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 76.3 fm. Íbúðin er merkt 03-03.
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2026 er 63.100.000 kr.*
Eignin skiptist í: forstofu, rúmgott svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, sér þvottahús innan eignar og 6,8 fm geymslu á fyrstu hæð.
Útgent er úr stofu á 8 fm svalir til suðurs með fallegu útsýni. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð í sameign.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
Eignin er staðsett á þriðju hæð fyrir miðju (303) með sér inngang í opnum utanáliggjandi stigagangi.
Forstofa: Rúmgóð, með flísum á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Stofa / borðstofa: Parket á gólfi. Gengið er út á 8 fm svalir frá stofu til suðurs með fallegu útsýni.
–Búið er að stúka af hluta stofunnar og búa til annað svefnherbergi.
Eldhús: með innréttingu og grárri borðplötu. Innbyggður bakaraofn, helluborð og uppþvottavél.
Baðherbergi: Flísalagt með dökkum flísum hólf og gólf á veggjum. Sturta, baðkar, upphengt salerni og innrétting með handlaug.
Þvottahús: Sér innan eignar, með flísum á gólfi og skolvaski.
Geymsla: 6,8 fm, staðsett á 1. hæð.
Sameign: Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á 1. hæð.
Eignin er staðsett í göngufæri við leikskóla, skóla og sundlaugina.
Fallegar gönguleiðir eru nálægt fjörunni á Álftanesi.
Bílastæði eru fyrir framan húsið og næg gestastæði til hliðar við það.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar.
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.