Domusnova fasteignasala og Bergrós lgf kynna til sölu virkilega flott og vel skipulagt 6 herbergja parhús á tveimur hæðum með bílskúr við Malarskarð 14. Eignin telur 4 svefnherbergi, stofu, eldhús, sjónvarpshol, 2 baðherbergi, þvottahús/geymslu og rúmgóðan bílskúr. Auðvelt er að breyta sjónvarpsholi í svefnherbergi.
Virkilega flott og vel skipulagt fjölskylduhús, staðsett í fjölskylduvænu hverfi, innst í botnlanga götu. Skóli og leiksskóli er í göngufæri.
Lýsing eignar:Neðri hæð: Gengið er inn á neðri hæð hússins, komið er inn í forstofu, 2 rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni, baðherbergi, sjónvarpshol, þvottahús/geymsla og bílskúr. Úti er gert ráð fyrir verönd með heitum potti, útgengt er út í heitapottinn frá baðherbergi.
Efri hæð: Alrými er rúmgott með góðri lofthæð. Gert er ráð fyrir eldhúseyju, útgengt er út á rúmgóðar svalir frá stofu. 2 rúmgóð svefnherbergi (annað þeirra er hjónaherbergið) og baðherbergi.
Eignin er afhend rúmlega fokheld, lóð grófjöfnuð, sjá nánari lýsingu í skilalýsingu sem fylgir söluyfirliti. Möguleiki er að fá eignina afhenda tilbúna til innréttinga eftir nánari samkomulagi. Eignin afhendist haustið 2024Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Í samræmi við 2. mgr. 14. gr. laga um sölu fasteigna og skipa er kaupandi upplýstur um að seljandi er félag í eigu aðila sem er tengdur fasteignasala sem sér um söluna.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.