Fasteignaleitin
Skráð 8. júní 2026

Rauðás 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
154.5 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
678.964 kr./m2
Fasteignamat
95.900.000 kr.
Brunabótamat
75.900.000 kr.
HJ
Helgi Jóhannes Jónsson
Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2046273
Landnúmer
111484
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suð / Vestur svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs 780-2700 kynna : 
Gullfalleg útsýnishús á efstu hæð (þriðju hæð) við Rauðás 12, 110 Rvk.  
Íbúðin sjálf sem er töluvert endurnýjuð er á tveimur hæðum með 5 svefnherbergjum, stórri stofu, opnu eldhúsi og sjónvarpsholi, þvottahús er innan íbúðar og sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameignilgeri vagna- hjólageymslu. Frábært útsýni og góðar suð/vestursvalir. Allar frekari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING :
 
Komið er inn í forstofu og opið alrými sem tengir annarsvegar svefnherbergisgang og hinsvegar eldhús, borðstofu og stofu, grunnflötur þessarar hæðar er 118 fm. Eldhús er stórt og endurnýjað (2019) með fallegri innréttingu með innbyggðum tækjum, góðu bekkplássi og eyju þar sem 3-4 geta setið við. Stórir gluggar á eldhúsi og borðstofu sem er í beinu framhaldi af eldhúsinu tryggja gott birtuflæði inn í eignina. Stofan er opin og rúmgóð með stórum gluggum og hurð út á svalir sem liggja í L meðfram suð-vestur hlið íbúðarinnar. Gólfefni á neðri hæð var endurnýjað á sama tíma og eldhúsið, þar er harðparket frá Birgisson.
Á svefnherbergisgangi eru 3 herbergi, hjónaherbergi með skápum, tvö barnaherbergi, annað minna en hitt töluvert stærra með gluggum í tvær áttir og frábæru útsýni.  Baðherbergi sem var endurnýjað árið 2017 er flísalagt með baðkari, sturtuklefa og handklæðaofni, góðri innréttingu og glugga með opnanlegu fagi. Þvottahús er flísalagt með innréttingu og góðri aðstöðu fyrir þvott og lín. Hringstigi er milli hæðanna en efri hæðin sem er 36,5 fm. skv. skrá fasteignaskrár Þjóðskrár en nýtist afar vel þar sem hluti henna er undir súð en þar eru m.a. góðar geymslur. Á efri hæðinni eru 2 góð barnaherbergi með skápum/hirslum meðfram súðinni. Opið hol er í miðju rýmisins sem nýtist nú sem sjónvarpshol og fjölskyldurými. Eigninni fylgir einnig sérgeymsla í kjallara sem er ekki inni í birtum ferm. skv. fasteignaskránni.
Sameiginleg hjólageymsla og stór sameiginleg geymsla í kjallara. 

Þetta er einstaklega fjölskylduvæn og góð eign á frábærum stað með fallegu útsýni yfir Rauðavatn. Frábær eign sem vert er að skoða.

Framkvæmdir seinustu ára samkvæmt seljanda:
Húsið var sprunguviðgert, málað og skipt um 4 glugga 2024.  
Þak og þakkantur var málað árið 2019. 
Stigagangur málaður og lagt nýtt teppi á sameign árið 2019. 
Þakkantur endurnýjaður að hluta og yfirfarinn árið 2017.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/11/202054.600.000 kr.60.250.000 kr.154.5 m2389.967 kr.
06/09/201329.150.000 kr.29.600.000 kr.154.5 m2191.585 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurbyggð 16 efri hæð
Bílskúr
Austurbyggð 16 efri hæð
600 Akureyri
180.3 m2
Fjölbýlishús
514
499 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarstræti 26B 204
Hafnarstræti 26B 204
600 Akureyri
93.3 m2
Fjölbýlishús
312
749 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101.6 m2
Fjölbýlishús
312
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkagata 5
Opið hús:11. júní kl 17:30-18:00
móa_vefur (1).jpg
Skoða eignina Fálkagata 5
Fálkagata 5
107 Reykjavík
73.9 m2
Fjölbýlishús
212
946 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin