SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLIS HÚS Í FYRSTU LÍNU VIÐ LAS COLINAS GOLFVÖLLINN. ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN OG TIL SJÁVAR*Einstakt og afar glæsilegt einbýlishús á einni hæð, opið og bjart, á einum eftirsóttasta stað Costa Blanca, á hinum margverðlaunaða Las Colinas golfvelli. Hér er um að ræða eign þar sem lúxus, næði og náttúrufegurð fara fullkomlega saman. Húsið stendur í fyrstu línu við golfvöllinn og býður upp á einstakt útsýni yfir golfvöllinn, gróið landslag og Miðjarðarhafið í fjarska.
Húsið er alls 200 m² og stendur á 732 m² einkalóð með fallega hönnuðum útisvæðum, stórum veröndum og einkasundlaug. Húsið snýr í suður, sem tryggir sól allan daginn. Einstök tenging milli innan- og útirýma.
ALLAR UPPLÝSINGAR GEFA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is, 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, 0034 615 112 869.FRÁBÆRT SKIPULAG:Björt og glæsileg stofa, borðstofa og rúmgott eldhús mynda fallegt opið alrými með stórum gluggum sem gefa einstaka birtu og stórkostlegt útsýni yfir golfvöllinn og náttúruna í kring. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvö glæsileg baðherbergi + gestasnyrting, fullbúið glæsilegt eldhús, rúmgóð stofa og borðstofa, þvottahús, geymsla, innbyggðir fataskápar, gólfhiti, miðlæg loftkæling og hitakerfi, snjallheimiliskerfi (Home Automation), rafmagnsgluggahlerar, LED lýsing, öryggiskerfi.
ÚTISVÆÐI OG LÍFSSTÍLL:Eignin býður upp á einkasundlaug, stórar sólríkar verandir, fallega hannaðan garð, einkabílastæði á lóð, óhindrað útsýni yfir golfvöllinn, sjávarútsýni, einstakt næði. Hér er um að ræða eign sem hentar jafnt sem glæsilegt heilsárshús, sumarhús eða fjárfestingareign á einu eftirsóttasta svæði Spánar.
EINSTÖK STAÐSETNING:Las Colinas Golf & Country Club er eitt virtasta og margverðlaunað golfsvæði Evrópu og þekkt fyrir einstaka hönnun, öryggi og náttúrufegurð. Svæðið býður upp á aðgangsstýrt og lokað samfélag, 24 tíma öryggisgæslu, margverðlaunaðan golfvöll, veitingastaði og þjónustu, íþrótta- og líkamsræktaraðstöðu, göngu- og hjólaleiðir, einstakt náttúrulegt umhverfi. Aðeins örfáar mínútur eru í verslanir, þjónustu, veitingastaði og fallegar strendur Campoamor og La Zenia.
Verð: 1.295.000 Evrur + kostn. við kaupin.EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST EINA AF BEST STAÐSETTU GOLFVILLUNUM Á LAS COLINAS.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001:✔ tryggir þekkingu
✔ öryggi
✔ reynslu
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKOSTNAÐUR VIÐ KAUP:
11% IVA (spænskur söluskattur), ca. 2-3% annar kostnaður. Samtals um 13-14%.
EIGINLEIKAR: einbýlishús, fyrsta lína við golfvöll, einkasundlaug, sjávarútsýni, gólfhiti, loftkæling, verandir, einkabílastæði, öryggisgæsla,
SVÆÐI: Costa Blanca, golf, Las Colinas,