Fasteignaleitin
Skráð 18. apríl 2026

Hlíðarvegur 1

EinbýlishúsVestfirðir/Ísafjörður-400
230.3 m2
9 Herb.
7 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
85.000.000 kr.
Fermetraverð
369.084 kr./m2
Brunabótamat
89.950.000 kr.
Byggt 1941
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
21197884
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK kynnir:  Fallegt og mikið endurnýjað 230 fm einbýlishús á útsýnisstað á Ísafirði.  Húsið telur tvær hæðir auk kjallara og býður upp á marga möguleika eins og auka íbúðarrými í kjallara.  6 - 7 svefnherbergi í húsinu  Þrír inngangar í húsið. Mjög snyrtileg lóð

*** Síðustu ár hefur húsið verið mikið endurnýjað eins og nýtt miðstöðvakerfi sett í húsið og ofnar endurnýjaðir.  Einnig var eftirfararandi endurnýjað:  Gólfefni, innihurðar, útihurðar, fataskápar, baðherbergi, eldhús, neysluvatnslagnir og þakjárn. ***

1.hæð:
Forstofa er á 1. hæð þar sem gengið er inn baka til og er hún flísalögð með fatahengi.
Hol er inn af forstofu með parketi á gólfi og útgengt út á svalir, en við svalainnganginn er fatahengi og hægt er að nýta sem sérinngang í húsið.
Svefnherbergin eru þrjú og tvö þeirra mjög rúmgóð.  Stór skápar í einu herbergjanna
Baðherbergið er með flísalagt gólf, fallega innréttingu og hornbaðkar.

Stiginn upp á 2. hæð er með harðparketi.

2.hæð:
Svefnherbergi er á hæðinni með harðparketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með steyptri sturtu með glervegg og fallegri innréttingu.
Stofan og borðstofan eru samliggjandi með harðparketi á gólfi og fallegu útsýni.
Eldhúsið er með mjög rúmgóðri innréttingu með nýlegum tækjum og helluborði.  Fallegt útsýni úr eldhúsi.

Sérinngangur er norðan megin við húsið.  Þar er nýleg hurð og flísar á gólfi.

Kjallari:
Herbergin eru þrjú í kjallaranum og öll nokkuð rúmgóð.  Eitt herbergið er nýtt sem geymsla. Harðparket á gólfi.
Flísalögð geymsla með glugga.
Kyndirými er með flísalagt gólf og skolvask.
Þvottahúsið er flísalagt og er nokkuð rúmgott.

Möguleiki er að gera aukaíbúðarrými í kjallara.

Ofan við húsið er verönd með geymsluskúr sem er tvískiptur.  Hann er með rafmagni.  Lóðin er mjög snyrtileg og vel hirt með lýsingu.

Bílastæði eru bæði sunnan við húsið og einnig ofan við húsið.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is og Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is
---------------------------------------------------------


 

Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Brekadalur 75
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Brekadalur 75
Brekadalur 75
260 Reykjanesbær
235.5 m2
Einbýlishús
Fasteignamat 17.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Vorbraut 51 endaraðhús
Bílskúr
Vorbraut 51 endaraðhús
210 Garðabær
231.7 m2
Raðhús
5
988 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Mýrarás 2
Opið hús:28. júlí kl 17:00-17:30
IMG_9890.JPG
Skoða eignina Mýrarás 2
Mýrarás 2
110 Reykjavík
222.5 m2
Einbýlishús
625
679 þ.kr./m2
151.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin