Baldur fasteignasali - Beinn sími 450-0000 kynnir: Björt og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð með
auka herbergi í kjallara til útleigu, rúmgóðum suðursvölum og einstöku útsýni á góðum stað á Akranesi. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum, þar á meðal eldhús, baðherbergi og gólfefni árið 2021 skv. eldri fasteigna auglýsingum. Húsið hefur einnig fengið gott viðhald að utan. Eign sem hentar jafnt fyrstu kaupendum sem fjárfestum.
Húsið og nærumhverfiðÁrið 2018 voru suðurhlið hússins og báðir gaflar klæddir ásamt því sem skipt var um glugga í stofu og svefnherbergi, svalahurð endurnýjuð og svalir lagfærðar. Húsið er klætt með álklæðningu og neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar upp í íbúð skv. upplýsingum úr eldri fasteignaauglýsingum. Eldvarnarhurð er á íbúðinni.
Helstu kostir:
Endurnýjað eldhús (2021)
Endurnýjað baðherbergi (2021)
Nýlegt parket
Rúmgóðar suðursvalir
8,5 fm sérgeymsla með glugga
Húsið klætt að utan (2018)
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar upp í íbúðNánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað árið 2021 og er með fallegri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi, Bosch bökunarofni, spanhelluborði og viftu. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Nýlegir gluggar til suðurs veita góða birtu.
Svefnherbergi er rúmgott með stórum fataskápum, parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar suðursvalir um nýlega svalahurð.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2021 og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting, upphengt salerni, sturta með innbyggðri lýsingu, vönduð blöndunartæki og tengi fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Sérgeymsla í kjallara er rúmgóð, uþb. 8,5 fermetrar að stærð, með glugga og máluðu gólfi. Leigutekjur geta verið uþb. 70.000 kr. á mánuði. Aðgangur að sameiginlegu baðherbergi.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er á góðum stað á Akranesi þar sem stutt er í verslanir, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og aðra helstu þjónustu. Fallegar göngu- og útivistarleiðir eru í nágrenninu sem gera staðsetninguna einstaklega eftirsótta.
Eign með góðu skipulagi, vönduðum endurbótum og hentug bæði til eigin nota og sem fjárfesting með leigutekjum.Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt