Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Víðilundur 14 - 203

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
99.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
550.652 kr./m2
Fasteignamat
50.300.000 kr.
Brunabótamat
46.150.000 kr.
EB
Ester Björnsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2151712
Landnúmer
149721
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Raflagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Frárennslislagnir
Þarfnast skoðunar
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott svo vitað sé
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já - til Vesturs
Lóð
4,45
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Kasa fasteignir 461-2010.

Víðilundur 14 íbúð 203 - Rúmgóð 3 herbergja 99,7 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi á Brekkunni.
*Eignin er laus til afhendingar í september 2026.

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu/borðstofu í opnu rými, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu ásamt sérgeymslu í sameign. 

Forstofa
og hol eru í opnu rými. Forstofa er flísalögð en í holi er parket á gólfi og opið fatahengi. 
Eldhús er með dúk á gólfi og rúmgóðri, hvítri innréttingu með flísum á milli skápa og plássi fyrir uppþvottavél. Lítill borðkrókur er við gluggann með útsýni til austurs. 
Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt úr á svalir til vesturs. 
Svefnherbergin eru tvö. Minna herbergið er með dúk á gólfi, en það stærra með spónaparket á gólfi og rúmgóðum fataskáp. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er ljós innrétting, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. 
Þvottahús er inn af eldhúsi. Þar er opnanlegur gluggi og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Inn af þvottahúsi er lítil geymsla. 
Sér-geymsla
 í sameign í kjallara fylgir íbúðinni. Hún er skráð 6,8 fm.

- Skipt var um allt gler og gluggalista í íbúðinni á síðustu árum
- Þak hússins var endurnýjað árið 2019
- Frárennsli hefur verið endurnýjað
- Stétt framan við húsið var nýlega endurnýjuð og sett hitalögn í hana
- Hjóla- og vagnageymsla er í sameign 

- Frábær staðsetning, rétt við leik- og grunnskóla og íþróttasvæði KA
- Stutt í verslanir og ýmsa þjónustu
- Stutt í þjónstukjarna og félagsmiðstöð aldraðra í Víðilundi 

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0105
Hnjúkamói 16, íbúð 0105
815 Þorlákshöfn
50.7 m2
Fjölbýlishús
211
886 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0101
Hnjúkamói 16, íbúð 0101
815 Þorlákshöfn
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0404
Hnjúkamói 14, íbúð 0404
815 Þorlákshöfn
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
740 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0402
Hnjúkamói 14, íbúð 0402
815 Þorlákshöfn
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin