Vernharð Þorleifsson lgf. kynnir fjölskylduvæna fimm herbergja sérhæð á 1. hæð með bílskúr sem hefur fengið miklar endurbætur á seinustu árum.Bílskúrinn hefur nýlega verið endurnýjaður að miklu leiti og býður uppá að innrétta sem íbúð eða tómstundarými.Eignin er staðsett á vinsælum stað í 105 Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, útivistarsvæði, Kringluna og miðbæ Reykjavíkur.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 150,0 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 105.100.000 kr.Frekari upplýsingar veitir Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramNánari lýsing:Flísalögð forstofa með fatahengi. Innangengt er í forstofuherbergi og sameign hússins.
Bjart og parketlagt forstofuherbergi með fallegum hornglugga sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Rúmgott hol sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar og skapar gott flæði um eignina.
Tvö svefnherbergi með parketi og dúk á gólfum. Hjónaherbergið er með góðu skápaplássi.
Smekklega endurnýjað eldhús með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi, spanhelluborði og notalegum borðkrók.
Bjartar og rúmgóðar stofur með fallegu parketi. Frá borðstofu er útgengt á sólríkar suðursvalir.
Flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla í kjallara, skráð 6,1 fm.
Sameiginlegt og rúmgott
þvottahús í kjallara.
BílskúrRúmgóður upphitaður bílskúr með heitu og köldu vatni, rafmagni og tengingu fyrir frárennsli.
Nýlega hefur skúrinn verið endurnýjaður að verulegu leyti og bíður uppá að innrétta sem íbúð, vinnustofu eða tómstundarými.
LóðFalleg og snyrtileg sameiginleg lóð með grasflöt og góðri innkeyrslu með rúmgóðum bílastæðum.
ViðhaldAð sögn eiganda hefur húsið fengið umfangsmikið og gott viðhald á síðustu árum, meðal annars:
2000–2005Húsið endursteinað.
Þakkantur endursteyptur.
Útitröppur endursteyptar og hiti lagður í þær.
2015Drenað fyrir framan húsið (suðurhlið).
Allar hita- og neysluvatnslagnir endurnýjaðar í íbúðinni.
Veggklæðning endurnýjuð í hjónaherbergi.
Ný gólfefni í svefnherbergjum.
Parket í stofum og holi slípað og lakkað
2018Eldhús endurnýjað.
Rafmagn í íbúð endurnýjað.
Ný rafmagnstafla.
2020Þak yfirfarið og nýtt járn sett þar sem þurfti.
Skipt um glugga sem voru metnir ónýtir, meðal annars í sameign.
Gluggalistar endurnýjaðir eða málaðir.
Svalagólf lagfærð.
Þakkantur vatnsþéttur og klæddur.
Þakrennur yfirfarnar og lagfærðar.
Ný svalahurð.
Svalagólf lagfært.
Nýir gluggar í forstofuherbergi, eldhúsi og geymslu.
2022Skolplagnir endurnýjaðar undir húsi og út í götu.
Nýr brunnur settur í garð.
Drenað meðfram vestur- og norðurhlið.
Jarðvegsskipt á baklóð.
2023Garðveggur lagfærður og málaður.
Blómabeð endurnýjuð.
2025Þakpappi og flasningar endurnýjað.
Endurbætur á bílskúr:
Gert við sprungur og skúrinn filteraður að utan.
Loft og veggir máluð.
Gluggi yfirfarinn og lakkaður.
Bílskúrshurð fjarlægð og í stað hennar settur einangraður timburveggur með útihurð og opnanlegum glugga.
Skúrinn er upphitaður með heitu og köldu vatni, rafmagni og tengingu fyrir frárennsli.
Helstu kostirSérhæð í fjögurra íbúða húsi.
Þrjú svefnherbergi.
Bjartar stofur.
Suðursvalir.
Endurnýjað eldhús.
Umfangsmikið viðhald á húsi.
Endurnýjaðar lagnir og rafmagn.
Ljósleiðari kominn inn í íbúð.
Rúmgóður upphitaður bílskúr með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum.
Góð innkeyrsla með bílastæðum.
Frábær staðsetning í vinsælu og grónu hverfi í 105 Reykjavík.
Falleg og vel viðhaldin fjölskyldaeign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu, útivistarsvæði, Kringluna og miðbæ Reykjavíkur.