Fasteignaleitin
Skráð 28. mars 2026

Santa Rosalia Spánn

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
210 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
99.135.000 kr.
Fermetraverð
472.071 kr./m2
Byggt 2024
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
9948896_19
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG í samstarfi við NovusHabitat kynnir glæsilega villu með 3 svefnherbergjum, kjallara og einkasundlaug í hinu eftirsótta Santa Rosalia Lake and Life Resort á Costa Cálida.

Um er að ræða nútímalegt og vandað nýbyggingaverkefni á einstökum stað innan þessa vinsæla og lokaða íbúðasvæðis þar sem öryggi, næði og lífsgæði fara saman.

Santa Rosalia Lake and Life Resort hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka uppbyggingu í kringum stórt manngert lón í strandstíl með kristaltæru vatni og fjölbreyttri afþreyingu. Á svæðinu er meðal annars strandbar, strandklúbbur með veitingastað og líkamsrækt, minigolf, göngu- og hjólreiðastígar, afslöppunarsvæði fyrir jóga og hugleiðslu auk fjölbreyttrar vatnaafþreyingar.
Þá eru fjölmargir golfvellir í næsta nágrenni og hinar vinsælu strendur við Mar Menor og bæinn Los Alcázares aðeins um 4 km frá svæðinu, þar sem öll helsta dagleg þjónusta er innan seilingar.

Villurnar eru byggðar á tveimur hæðum auk kjallara. Á jarðhæð er bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda og fallega heild með stórum gluggum sem opnast út á yfirbyggða verönd og einkasundlaugarsvæði. Á þessari hæð er einnig eitt svefnherbergi og fullbúið baðherbergi. Á efri hæð eru síðan tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi og útgengi út á verönd. Í kjallara er fjölnota rými sem hægt er að nýta á ýmsa vegu eftir þörfum, til dæmis sem sjónvarpsherbergi, líkamsrækt, leikrými, vinnuaðstöðu eða gestasvæði, og mögulegt er að sérsníða það frekar gegn aukagjaldi, allt eftir byggingarstigi.

Eignirnar eru hannaðar með áherslu á nútímalegt yfirbragð, gæði og þægindi og innifela meðal annars uppsetningu fyrir loftræstikerfi, inni- og útilýsingu, einkasundlaug, útisturtu og bílastæði á lóð. Hér er því um að ræða afar vel útfærð einbýlishús á einum eftirsóttasta stað svæðisins þar sem auðvelt er að njóta bæði afslöppunar og virks lífsstíls allt árið um kring.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við alla þætti kaupferlisins, þar á meðal tengingu við banka, lögfræðinga og þjónustuaðila á Spáni, og tryggja þannig einfalt og öruggt ferli fyrir kaupendur. Athygli er vakin á því að verð í íslenskum krónum er áætlað viðmið miðað við gengi á hverjum tíma. Endanleg viðskipti fara fram í evrum (EUR) og getur gengi haft áhrif á heildarkostnað.

Ferlið er einfalt; þú segir okkur hverju þú leitar að og við aðstoðum þig við að finna rétta eign. Við skipuleggjum skoðunarferðir og tökum að hluta þátt í kostnaði vegna þeirra, verði af kaupum. Við kaup á nýbyggingum á Spáni leggst almennt 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) ofan á kaupverð. Auk þess má gera ráð fyrir um 3% viðbótarkostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda, þannig að heildarkostnaður getur numið um 13% ofan á kaupverð. Við veitum aðstoð við allt kaupferlið á Spáni sem felur meðal annars í sér útgáfu NIE-númers, opnun bankareiknings og aðkomu lögfræðings. Algengt er að fjármögnun fáist hjá spænskum bönkum að hluta til, oft á bilinu 50–70% af kaupverði, háð mati á greiðslugetu.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorláksgeisli 64
Bílskúr
Þorláksgeisli 64
113 Reykjavík
203.3 m2
Raðhús
524
767 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina Vallholt 22
Á einni hæð
Skoða eignina Vallholt 22
Vallholt 22
355 Ólafsvík
198.5 m2
Einbýlishús
615
380 þ.kr./m2
75.500.000 kr.
Skoða eignina Trilluvogur 1
Hleðslustöð
móa_vefur (10).png
Skoða eignina Trilluvogur 1
Trilluvogur 1
104 Reykjavík
206.6 m2
Raðhús
634
662 þ.kr./m2
136.850.000 kr.
Skoða eignina Hjarðarholt 14
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Hjarðarholt 14
Hjarðarholt 14
300 Akranes
196.7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
386 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin