Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í vel viðhöldnu fjölbýli við Álftamýri 36, 108 Reykjavík. Bílskúr fylgir eigninni. Birt stærð eignar er 108,5 fm., þar af er íbúðarhluti 87,6 fm. og bílskúr 20,9 fm. bílskúr. Góða aðkoma er að húsinu og lóð er snyrtileg og vel frágengin. Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og bílskúr. Í sameign eru sameiginleg þvottahús og vagna- og hjólageymsla.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing:Forstofa: Parketlögð forstofa með góðum fataskáp.
Eldhús: Stórt eldhús með upprunalegri innréttingu og borðkrókur, dúkur á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt parketlögð með útgengi út á suðursvalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi, dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum með baðkari.
Geymsla: 4,9 fm. geymsla í kjallara.
Bílskúr: Gengt húsinu. Merktur 0104. Með rafmagni, hita og rennandi vatni.
Sameign: Snyrtilegur teppalagður stigagangur. Sameiginlegt þvottahús og vagna og hjólageymsla.
Húsið: Húsið að Álftamýri 32-36 er steinsteypt, 3 stigagangar og eru 12 íbúðir í hverjum stigagang. Bílskúrar eru steinsteyptar.
Lóð: Sameiginleg 4308 fm gróin lóð. Bílastæði eru í óskiptri sameign að undanskildum bílastæðum framan við bílskúrana sem eru í eigu bílskúrseiganda.
Húsið er vel við haldið að utan m.a. var gert við ytra byrði hússins 2016-2017 og þak lagfært fyrir nokkrum árum.Góð og eftirsótt staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu. Falleg eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.