Fasteignaleitin
Skráð 20. mars 2026

Dalsel 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
108.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
642.463 kr./m2
Fasteignamat
67.950.000 kr.
Brunabótamat
60.230.000 kr.
Mynd af Haukur Páll Ægisson
Haukur Páll Ægisson
Fasteignasali
www.primafasteignir.isEignir í sölu
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2055838
Landnúmer
113071
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Virðist í lagi
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lokaðar
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Frá síðustu framkvæmdum á gluggum og hurðum á eftir að laga nokkur opnanleg fög og eina hurð í Dalseli 8. Pening haldið eftir í húsfélagi.

Þak var ekki nógu vel unnið svo það stendur til að skipta um þak. Búið er að fá nokkur tilboð en haldin verður húsfundur í lok mars til að ákveða meira.
Prima fasteignasala og Haukur Páll Ægisson lgf. kynna í einkasölu Dalsel 8 íbúð 102.

Um ræðir fjögurra herbergja íbúð í Dalseli 8 í Seljahverfi í Reykjavík. Íbúðin skiptist í stofu, setustofu/sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi með sturtu, eldhús og geymslu á neðstu hæðinni. Einnig er sameiginleg hjólageymsla og þurrkherbergi.
Birt stærð eignarinnar er 108,8 m², íbúð er skráð 100,8 m² ásamt geymslu í kjallara 8 m².  Merkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.


Lýsing eignar
Forstofa með rúmgóðum fataskáp.
Rúmgóð stofa og útgengt út á litlar lokaðar svalir.
Sjónvarpshol í opnu rými við stofu.
Þrjú svefnherbergi öll með fataskáp.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús með ágætri innréttingu og upphengdum skápum
Baðherbergi með sturtu, hvítum vaskaskáp og spegli ásamt handklæðaofni.
Merkt stæði í bílageymslu.

Samkvæmt eiganda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á húsinu síðustu ár.
2017:  Eldvarnarhurðar settar í fyrir allar íbúðir (nema kjallara íbúð).
2022:  Nýir gluggar og nýjar útihurðir. Þakskyggnið málað að framan og gert við litla þakið við inngang.
2024:  Nýjar lokur á aðalinntaki fyrir heitt og kalt vatn sem er í bílskýli.
2024:  Sett var ný loka fyrir inntakið fyrir kaldavatnið.
2025:  Nýir mælar og þrýstiloka/slaufuloka.
2025:  Sett var upp fyrir rafmagnsbíla í bílageymslu um mitt árið 2025. Fólk getur sett upp sína eigin stöð eða leigt stöð.

Nánari upplýsingar veita:
Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / haukurpall@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/10/201833.650.000 kr.19.250.000 kr.108.8 m2176.930 kr.Nei
15/11/201624.700.000 kr.31.500.000 kr.108.8 m2289.522 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1975
Fasteignanúmer
2055838
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
09
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.530.000 kr.

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fossvogsvegur 24
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 24
Fossvogsvegur 24
108 Reykjavík
189.2 m2
Fjölbýlishús
514
1163 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 20
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 20
Fossvogsvegur 20
108 Reykjavík
170.7 m2
Fjölbýlishús
413
1201 þ.kr./m2
205.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Fossvogsvegur 18
108 Reykjavík
241.8 m2
Fjölbýlishús
514
1385 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 16
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 16
Fossvogsvegur 16
108 Reykjavík
189.4 m2
Fjölbýlishús
514
1162 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin