Borg fasteignasala kynnir: Til sölu þjónustu-/iðnaðar- og/eða lagerhúsnæði að Viðarhöfða 6, 110 Reykjavík. Góð aðkoma og tenging við stofnbraut. Stór innkeyrslu hurð og sérinngangu frá möttökuhúsi. Sérafnota reitur fylgja eigninni. Hentar fyrir ýmiskonar starfssemi.
Bókið skoðun.
Samkvæmt HMS er húsnæðið skráð 274,3 fermetrar að stærð, þar af er milliloft 23,6 fermetrar og móttökurými um 15 fermetrar.
Iðnaðabil með móttökurými og innkeyrsluhurð. Hentar sem þjónustu-/iðnaðar- eða lagerhúsnæði. Mjög góð staðsetning við Viðarhöfða 6, 110 Reykjavík. Góð aðkoma og tenging við stofnbraut.
Stór innkeyrslu hurð og sérinngangur, fyrir framan bilið er sérafnota reitur sem nær 14,5 metra út frá hurð. Eigninni fylgir 1 bílastæði á efra plani hússins.
Heitt og kalt vatn.
Húsnæðið innréttað sem bílamálunar verkstæði, í húsnæðinu er núna sprautiklefi sem seljandi mun taka með sér.
Fyrir framan er móttöku rými. Lofthæð í rýminu er 4,8 metrar.
Sérstaklega gott atvinnuhúsnæði í góðu húsi á Höfðanum.. Bókið skoðun.
Nánari upplýsingar veita:
Victor Levi R. Ferrua, Löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222, tölvupóstur victor@fastborg.is
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali - gunnlaugur@fastborg.is.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.