Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi á vinsælum stað á Kársnesinu í Kópavogi. Gott ústýni og stutt í alla helstu þjónustu.
** Hærri lofthæð
** Gott útsýni
** Hús endurbyggt árið 2012
** Frábær fyrstu kaupNánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. Fasteignaskrá Íslands er 53,4m
2.
Eignin skiptist í hol, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar.
Nánari lýsing:
Hol er með góðum hvítum fataskáp. Parket á gólfum.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt í sama rými og eldhús. Parket á gólfum.
Eldhús er með hvíta eldhúsinnréttingu, bakaraofn, innbyggða uppþvottavél og keramik helluborð. Útgengt er á svalir til suðvesturs með góðu útsýni. Parket á gólfum.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Hvít baðinnrétting með stæði fyrir þvottavél/þurrkara, flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Geymsla er inn af svefnherbergi með parketi á gólfum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sérstakri byggingu á lóðinni
Húsið var byggt úr steinsteypu og timbri árið 1960 en var endurbyggt árið 2012 og hafa því m.a. öll lagnakerfi verið endurnýjuð.
Kópavogsbraut 3, íbúð merkt 0404, er afar falleg og björt eign í hinu rótgróna og afar vinsæla Kársneshverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu, en þar má helst nefna leikskóla, grunnskóla, menntaskóla, sundlaug Kópavogs og verslun og þjónustu við Hamraborg og Nýbýlaveg. Frábær fyrstu kaup.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.