Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2026

SPÁNAREIGNIR - Nýja Torrevieja

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
123 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
48.600.000 kr.
Fermetraverð
395.122 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
11000130726
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
4
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sér garður
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR FJÖLSKYLDUVÆNAR ÍBÚÐIR* *FRÁBÆR STAÐSETNING* *FJÖLBREYTT AFÞREYING Í SAMEIGN* *3JA OG 4RA HERBERGJA ÍBÚÐIR* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU*


Nýjar, vel skipulagðar, flottar íbúðir á góðum stað í nýja Torrevieja hverfinu sem er spennandi framtíðarsvæði á Costa Blanca. Hægt er að velja um jarðhæð með stórri verönd, miðhæðir með stórum svölum eða penthouse með stórum svölum og sér þaksvölum. Flottur sundlaugargarður og fallegt umhverfi. Aðstaða til fjölbreyttrar afþreyingar í sameign fyrir bæði börn og fullorðna. Aðeins um 30 mín akstur suður frá Alicante. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarmiðstöðina Habaneras, úrval veitingastaða, fallegar strendur og ótal góða golfvelli.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali,  GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is


Nánari lýsing:
Gengið er inn í rúmgott rými sem sameinar stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými. Tvö svefnherbergi og tvö fullbúin baðherbergi. Sérlega vandaðar og fallegar íbúðir með suður- eða vestursvölum eða 65 fm sérverönd/garði.

Fjölbreytt aðstaða er í sameign, s.s. sundlaugar, fullbúin líkamsrækt, spa og sauna, padelvellir, leiksvæði fyrir börn, græn svæði, hjólageymslur.

Alicante flugvöllur er í ca. 30 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Íbúð á jarðhæð með 2 svefnherb. + 2 baðh.: Verð frá 335.000 evrum (ISK 48.600.000) + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.

Íbúðirnar afhendast tilbúnar í apríl 2027.

Meira um Nýja Torrevieja hverfið:
Frábær staðsetning við náttúrulegu saltvötnin í Torrevieja. Heilsusamlegt loftslag og góð tenging við helstu samgönguleiðir s.s. N332 strandveginn og A-7 hraðbrautina. Ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Í næsta nágrenni er fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða, Habaneras verslunarmiðstöðin, stóra Carrefour verslunin, stærsti götumarkaðurinn í Torrevieja (á föstudögum), ráðstefnu- og tónleikahöll og alþjóðlega einkasjúkrahúsið Quirón. Gott aðgengi er að íþróttasvæðum, skólum og stutt á ströndina. Við uppbyggingu á hverfinu er mikil áhersla lögð á fallegt og afslappað Miðjarðarhafsumhverfi. Lögð er áhersla á sambland náttúru og bæjarstemmingu fyrir þá sem velja þægilegan lífsstíl og heilsusamlegt líferni. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, iðandi mannlíf Torrevieja með skemmtilegu "promenade" meðfram ströndinni og við bátahöfnina. Í Nýja Torrevieja hverfinu finnur fólk nánast allt sem er á óskalistanum þegar velja á íbúð í Spánarsólinni.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, svalir, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, geymsla, þaksvalir, líkamsrækt, 
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
11000130726
Fasteignanúmer
11000130726

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langalína 7
Bílastæði
Skoða eignina Langalína 7
Langalína 7
210 Garðabær
119.1 m2
Fjölbýlishús
312
881 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 4
Bílastæði
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:45
Skoða eignina Skólatröð 4
Skólatröð 4
200 Kópavogur
105.3 m2
Fjölbýlishús
312
892 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 2
Bílastæði
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:45
Skoða eignina Skólatröð 2
Skólatröð 2
200 Kópavogur
109.8 m2
Fjölbýlishús
43
883 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Dalbraut 4
Bílastæði
55 ára og eldri
Skoða eignina Dalbraut 4
Dalbraut 4
300 Akranes
123.4 m2
Fjölbýlishús
312
729 þ.kr./m2
90.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin