Kvöð er á eigninni um að kaupendur og notendur eignarinnar skuli vera 60 ára eða eldri, og um forkaupsrétt.
Raðhús á einni hæð með bílskúr. Húsið er steinsteypt. Húsið skiptist í forstofu, stofu með parketi og útgangi út á timburlagða verönd, eldhús er parketlagt með viðarinnréttingu, efri og neðri skápum. Bæði hjónaherbergi og annað svefnherbergi eru parketlögð og með fataskápum. Úr eldhúsi er gengið inn í geymslu/þvottahús, með máluðu gólfi, en þaðan er innangengt í bílskúr og einnig er gengið þaðan út á sólpall. Bílskúrsgólf er málað og geymsluloft er yfir hluta bílskúrsrýmis. Lóðin er frágengin, með steyptu bílaplani fyrir framan hús og grasflöt sunnan megin. Húsið er hluti af sjö íbúða raðhúsi. Í næsta nágrenni eru fleiri íbúðir ætlaðar eldri borgurum. Hjúkrunarheimilið Fellaskjól er handan götunnar. Stutt er í aðalmatvöruverslun bæjarins og heilsugæslustöð (~500m) og íþróttahús/sundlaug (~300m).
Nánari upplýsingar má sjá hér: Hrannarstígur 34
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
806 | 89,6 | 39,9 | ||
162 | 129,5 | 51,9 | ||
1053 | 68 | 38,4 | ||
800 | 100,4 | 69,9 | ||
108 | 55,3 | 49,9 | ||
221 | 209,7 | 132,9 |