Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2026

Gauksrimi 21

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
115 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.000.000 kr.
Fermetraverð
565.217 kr./m2
Fasteignamat
64.650.000 kr.
Brunabótamat
65.750.000 kr.
Mynd af Kristófer Ari Te Maiharoa
Kristófer Ari Te Maiharoa
Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2186094
Landnúmer
162158
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt - nýir tenglar og rofar 2021
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
gott - nýlegar rúður á suðurhlið
Þak
gott - málað 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Gauksrimi 21, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 218-6094 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Gauksrimi 21 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 218-6094, birt stærð 115.3 fm. Eignin er steinsteypt 4ra herb. miðjuraðhús í grónu hverfi á Selfossi.
 
Aðaldyr liggja inn í flísalagða forstofu með hengi fyrir yfirhafnir, flísalagt þvottahús við hlið hennar, og dyr út úr því við hlið aðaldyra. Innifyrir er flísalagt miðrými með þakglugga, hvaðan gengt er í öll önnur rými hússins. Eldhús með upprunalegri innréttingu, gólfið flísalagt og ágætur borðkrókur. Ennfremur búr með ágætu hilluplássi og korkflísum á gólfi. Stofa með parketi á gólfi og uppteknu lofti. Árið 2021 voru loftaplötur endurnýjaðar í eigninni og innfelld led lýsing komið fyrir. Úr stofu er gengt út á stóran pall fyrir allri suðurhlið hússins, dálítil grasflöt þar fyrir utan að lóðarmörkum með trjám sem veita skjól. Hurð út í garð þarfnast viðhalds. Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergið stærst og með ágætum skápum og uppteknu lofti, einnig upptekið loft í öðru herberginu. Parket á gólfum allra. Baðherbergið var tekið í gegn af fyrri eiganda u.þ.b. á árunum 2018-2021. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, upphengt klósett, hlaðinn sturtuklefi, baðkar, handklæðaofn, vaskur á skáp og skápur uppá vegg ofan við baðkarið og annar með skúffum við hlið vasksins. Nýtt blöndunartæki er í sturtu. Árið 2021 var skipt um tengla og rofa í eigninni.

Að utan er húsið málað ljósum lit, gluggar og hurðir úr tré og bárujárn á þaki. Fyrir nokkrum árum var skipt um gler í öllum gluggum á suðurhlið hússins af fyrri eiganda. Sumarið 2025 var járn á þaki grunnað og málað. Að framan, við hlið aðalinngangs hefur verið komið upp kaldri geymslu úti í horni á stéttinni en þakið nær framyfir hana.  Bílastæðin eru malarborin við enda hússins og speypt stétt að inngangi, hávaxinn trjágróður umhverfis. Byggingarréttur til þess að byggja bílskúr fylgir eigninni.

Eignin staðsett í rótgrónu hverfi á Selfossi. Stutt í alla þjónustu, grunnskóla, framhaldsskóla, íþróttarsvæði og sundlaug. 

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/12/202034.350.000 kr.38.000.000 kr.115.3 m2329.575 kr.
29/12/201417.800.000 kr.17.500.000 kr.115.3 m2151.777 kr.Nei
12/12/200716.670.000 kr.21.000.000 kr.115.3 m2182.133 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 47
Skoða eignina Holtsvegur 47
Holtsvegur 47
210 Garðabær
105.1 m2
Fjölbýlishús
211
694 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjutorg 6
Skoða eignina Kirkjutorg 6
Kirkjutorg 6
101 Reykjavík
67.1 m2
Fjölbýlishús
21
1101 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Akralundur 17
Bílskúr
Skoða eignina Akralundur 17
Akralundur 17
300 Akranes
183.6 m2
Raðhús
524
626 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 6
Skoða eignina Barmahlíð 6
Barmahlíð 6
105 Reykjavík
72.5 m2
Fjölbýlishús
312
862 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin