Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóða, fallega og bjarta þriggja herbergja endaíbúð með sérinngangi í nýlegu (2020) litlu fjölbýli við Sjónarveg 3 í Urriðaholtinu, Garðabæ. Eigninni fylgir rúmgóður sólpallur í suðurátt. Frábær staðsetning á þessum vinsæla stað í Urriðaholtinu, í nálægð við skóla, leikskóla, þjónustukjarnann í Kauptúni og falleg útivistarsvæði.
- Gott aðgengi að íbúðinni
- Sérinngangur
- Rúmgóður sólpallur í suðurátt
- Útsýni
Íbúðin er skráð 107,2 fm skv. HMS. Nánari lýsing: Flísalögð
forstofa með góðum fataskápum.
Hol/gangurOpið bjart alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Gluggar í þrjár áttir.
Eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Vandaðar innréttingar frá HTH, kvartssteinn á borðum. Flísar á milli efri og neðri skápa. Heimilistæki eru frá AEG.
Frá
borðstofu er útgengt á rúmgóða
verönd með góðum skjólveggjum sem snýr í suðurátt.
Björt og rúmgóð
stofa með útsýni.
Hjónaherbergi með fataherbergi.
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með innréttingu með kvartssteinn á borði. Upphengt salerni og ,,walk-in'' sturta. Handklæðaofn.
Sér þvottaherbergi með flísum á gólfi.
Sér geymsla í sameign og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Innanhússráðgjöf var frá HAF STUDIO. Fallegt ljóst fiskibeinaparket á gólfum í alrými og herbergjum. Ljósar flísar í votrýmum. Allar innréttingar eru frá HTH. Innréttingar í eldhúsi og baðherbergi eru grálakkaðar en fataskápar eru hvítlakkaðir. Borðplötur eru úr ljósum kvartsstein.
Um er að ræða glæsilega íbúð í vönduðu áklæddu húsi á frábærum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ.
Allar nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.