VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Bjarkarheiði 18, 810 Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð með bílskúr.
Um er að ræða miðíbúð með bílskúr í fjögurra íbúða raðhúsi.
Íbúðin er 99,6 m² að stærð og bílskúrinn 22,8 m², samtals 122,4 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús, stofu og innbyggðan bílskúr.
Hellulagt bílaplan. Hiti er í bílaplani og gangstétt að húsi.Sjá staðsetningu hér:Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Lýsing eignar:Forstofa er flísalögð og þar er þrefaldur fataskápur. Innangengt er frá forstofu í bílskúr.
Eldhús er í opnu rými. Innrétting er u-laga með efri og neðri skápum, góðu vinnuplássi, pláss fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Stofa/borðstofa tengjast eldhúsi í opnu rými. Parket á gólfi.
Hjónabergi með parketi á gólfi, fjórfaldur fataskápur.
Svefnherbergi I parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Svefnherbergi II parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi er flísalgt í hólf og gólf. Þar er innrétting með handlaug og skápaplássi, baðkar, sturtuklefi og handklæðaofn.
Þvottahús og geymsla með flísum á gólfi. Þar er ágætt vinnupláss og útgengt á baklóð. Frá geymslu er einnig innangengt í bílskúr.
Bílskúr með máluðu gólfi, gönguhurð frá bílskúr að geymslu/þvottahúsi og einnig innangengt að forstofu.
Hellulagt er bæði fyrir framan hús og aftan. Hiti er bæði í bílaplani og gönguleið að húsi. Svæðið fyrir aftan hús er allt hellulagt.
Gólfefni: parket og flísar.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma
861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma
823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.