Fasteignaleitin
Opið hús:01. okt. kl 18:00-18:30
Skráð 19. júní 2026

Eirhöfði 7D íb.116

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
138 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
131.900.000 kr.
Fermetraverð
955.797 kr./m2
Fasteignamat
108.100.000 kr.
Brunabótamat
81.600.000 kr.
Byggt 2025
Jarðhæð
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534491
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
16
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.  Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og góðar samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman. Skoða heimasíðu verkefnisins.
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20.
Íbúð 116 er glæsileg og rúmgóð 3 herbergja íbúð á 1. hæð, samtals 138,1 m² að stærð, þar af er sérgeymsla 12,7 m². Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, anddyri með góðu skápaplássi, sérþvottahús og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Íbúðin er seld án bílastæðis. Kaupandi fær þó afnot af bílastæði í bílakjallara í tvö ár frá afhendingu. Hægt er að kaupa bílastæði með íbúðinni fyrir 7 milljónir króna til viðbótar við auglýst verð.
Alrýmið er rúmgott og bjart. Stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda heild með stórum gluggum og útgengi á svalir.
Eldhúsið er sérsmíðað frá Voké-III í litnum Kasmír grár og búið Quartz borðplötum, Miele heimilistækjum og GROHE blöndunartækjum. Þar fer falleg hönnun saman við gott vinnurými og mikið skápapláss.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og sérbaðherbergi. Hitt herbergið hentar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða heimaskrifstofa. Auk þess er annað baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðarinnar.
Íbúðin er hönnuð af Rut Kára með gæði, þægindi og endingu að leiðarljósi. Vélræn loftræsting, sérsmíðaðar innréttingar og vandað efnisval setja svip sinn á heimilið. (Athugið að myndir í auglýsingunni eru úr sýningaríbúð verkefnisins og eru ekki af íbúð 116.)
Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta stað Ártúnshöfða, með útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar nálægðar við borgarlífið og tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst tækifæri til að kaupa íbúð í nýjum borgarhluta Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er að hefjast.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina DALSEL 31
Bílskúr
Opið hús:05. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina DALSEL 31
Dalsel 31
109 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
413
715 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Grundartangi 20
Hleðslustöð
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grundartangi 20
Grundartangi 20
270 Mosfellsbær
136.5 m2
Fjölbýlishús
614
878 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 52
Bílskúr
Háaleitisbraut 52
108 Reykjavík
129.1 m2
Fjölbýlishús
413
673 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Möðrufell 3
3D Sýn
Efsta hæð
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Möðrufell 3
Möðrufell 3
111 Reykjavík
79.1 m2
Fjölbýlishús
312
670 þ.kr./m2
53.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin