Fasteignaleitin
Skráð 13. ágúst 2026

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
118.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
1.268.190 kr./m2
GM
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteignasali
https://miklaborg.isEignalisti
4. hæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2532687
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Miklaborg kynnir: Valshlíð 3 - Íbúð 406.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning. Með í kaupum á íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara (langtímaleiga með íbúð).

Á sölusíðu eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 98,175,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Gabriel Mána Hallsson löggiltan fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is eða Svan Gunnar Gunnlaugsson í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Björt og stórglæsileg 4-5 herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í Hlíðahorni. Birt stærð er 118,2 fm þar af 11,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin, sem er horníbúð og því með glugga á 3 vegu, skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir og svalir, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3+.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri inn í rúmgott alrými, eldhús með stórri eyju með vaski og stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar útsýnissvalir (vestur) og tæplega 30 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott. Ljós eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr burstuðu krómi. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og vínkælir. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. 3 góð svefnherbergi með skápum, en hægt væri að fækka um eitt herbergi og stækka þannig alrými sem því nemur. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr burstuðu krómi. Sér þvottaherbergi inn af baðherbergi með ljósum innréttingum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0028. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur geta valið að gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Nánari upplýsingar veita:

Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 12
Smyrilshlíð 12
102 Reykjavík
115.6 m2
Fjölbýlishús
413
922 þ.kr./m2
106.600.000 kr.
Skoða eignina Eskihlíð 22
Opið hús:17. ágúst kl 16:30-17:00
Skoða eignina Eskihlíð 22
Eskihlíð 22
105 Reykjavík
95.7 m2
Fjölbýlishús
413
864 þ.kr./m2
82.700.000 kr.
Skoða eignina Þórðarsveigur 22
Bílastæði
Opið hús:29. ágúst kl 13:00-13:20
Þórðarsveigur 22
113 Reykjavík
122.9 m2
Fjölbýlishús
413
764 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvellir 8A
Skoða eignina Kirkjuvellir 8A
Kirkjuvellir 8A
221 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús
413
714 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin