Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérafnotareit í fjölbýlishúsi að Drápuhlíð 10 í Reykjavík. Eignin er skráð 98,7 fm. og skiptist í anddyri/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús með borðkrók, borðstofu og stofu. Frá stofum er útgengt á sérafnotareit sem snýr til suðurs með útsýni í mjög snyrtilegan sameiginlegan garð. Sérgeymsla er undir stigarými húss. Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is
*** Samkvæmt seljanda hefur húsið fengið mikið viðhald og má nefna eftirfarandi framkvæmdir;- 2016 Húsið steinað að utan.
- 2016 Gluggar íbúðar endurnýjaðir (eigandi íbúðar á þeim tíma kostaði þá framkvæmd).
- 2017 Garður tekinn í gegn.
- 2020 Endurnýjað dren.
- 2020 Steyptar tröppur fyrir sérafnotkunarreit eignar
- 2020 Skipt um túður á þaki.
- 2020 Sett upp ný ruslatunnugerði.
- 2020 Plan hellulagt og settur hiti í hluta af plani.
- 2022 Skolplagnir myndaðar og brotið upp (talið að lagnir hafi verið í lagi).
- 2022 Endurnýjað lagnagrind og neysluvatn.
- 2023 Endurnýjun á hluta miðstöðvarlögna í kjallara (settar utanáa liggjani lagnir).
Nánari lýsing:
Anddyri: Gengið er inn um sameiginlegt anddyri með aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi.
Forstofa/Hol: Komið er inn í rúmgóða harðparketlagða forstofu eða hol sem tengir saman flest rými eignarinnar.
Eldhús: Falleg endurnýjuð hvít innrétting með góðu vinnuplássi og harðviðarplötu á borðum. Bakaraofn, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Stórar og miklar stofur í opnu og björtu rými með nýlega endurnýjuðum gluggum og harðparketi á gólfi. Útgengt er á sérafnotareit sem snýr út í sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum háum fjórföldum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi er annað svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Áður en gengið er inn í herbergið tekur við fataherbergi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með handlaug og neðri skápum. Innbyggðar hirslur í hluta veggjar. Upphengt salerni og flísalögð sturta með hertu gleri. Flísar gólf.
Garður: Stór og snyrtilegur sameiginlegur garður. Fallega hirtur og gróinn. Búið er að gróðursetja mikið af fallegum plöntum og trjám.
Sérgeymsla/þvottaherbergi: Sérgeymsla er staðsett undir stiga húss. Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi með tengjum fyrir þvottavélar. Sameiginlegt rými fyrir hjóla og vagnageymslusvæði.
Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á mjög vinsælum stað í Reykjavík. Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu er vandfundin. Góðar samgönguæðar tengja hverfið við alla staði borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla og útivistarsvæðin Klambratún og Öskjuhlíð.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isFáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.