Fasteignaleitin
Skráð 18. apríl 2024
Deila eign
Deila

Langimelur 29

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
Verð
10.900.000 kr.
Fasteignamat
1.645.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Útsýni
Fasteignanúmer
2519252
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Matsstig
0 - Úthlutað
Remax kynnir til sölu lóðir í Hvammsvík:  Einstaklega falleg jörð sem staðsett er í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar.  Svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 45 mín. fjarlægð frá Reykjavík. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni.  Mikið fuglalíf er á svæðinu og hefur jörðin mikla sögu allt frá landnámsöld.   Lóð nr. 29 er um 0,56 ha. að stærð og heimilt byggingarmagn er 3% af lóðarstærð eða um 168 fm. 

Landeigandi mun sjá til þess að leggja veg að sumarhúsalóðum og sjá til þess að vegurinn verði tilbúinn fyrir flutninga og lokafrágangur síðla árs 2022. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði með 80 cm þykku malarlagi í vegstæði og breidd í toppinn verði 4,5 m.   Landeigandi verður í samskiptum við Kjósarveitur og RARIK en Kjósarveitur leggja hitaveitu ásamt ljósleiðara og RARIK rafmagn að lóðarmörkum.  Landeigandi sér til þess að veituskurður meðfram vegi verði til staðar þar til gengið hefur verið frá öllum lögnum í skurðinn en heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og ljósleiðara nýta skurðinn.  Landeigandi mun setja upp hlið og girða af svæðið meðfram þjóðveginum í gegnum land Hvammsvíkur. Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá hliði. 

Kaupandi er upplýstur um að hann semur sjálfur um tengigjöld og notkun við RARIK vegna rafmagns og Kjósarveitur vegna heits vatns og ljósleiðara. Landeigandi leggur kalt vatn að lóðarmörkum án innheimtu tengigjalds en kaupandi greiðir landeiganda fyrir kalt vatn kr. 30.000 á ári frá 1. janúar 2023. Vatnsgjaldið hækkar í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2024. Kaupandi er upplýstur um að heitt vatn verður ekki tengt fyrr en í fyrsta lagi vor 2023.
Kaupandi er upplýstur um að hann beri ábyrgð á lagningu allra lagna inni á sinni lóð.
Kaupandi er jafnframt upplýstur um að samkvæmt deiliskipulagi skulu frístundarhúsin að jafnaði vera á einni hæð en með nýtanlegu risi og er hámarks byggingarmagn á hverri lóð 3% eða um 168 fm. Áhersla er á vönduð hús sem mynda heildstæða mynd og falla vel að umhverfinu. 
Lóðareigandi ber sjálfur ábyrgð á að leggja innkeyrslu / bílastæði frá lóðamörkum  að sínu húsi.

Seljandi hefur nýlega samið við Kjósarveitur um heimtaug hitaveitu og greitt 70% tengigjalds að fjárhæð u.þ.b. kr.1.187.000,- sem kaupandi skal endurgreiða seljanda við undirritun kaupsamnings.  Kaupandi mun síðan greiða eftirstöðvar, þ.e. 30% kostnaðar til Kjósarveitna þegar að gjalddaga kemur.

Fráveita er á ábyrgð lóðareiganda í samræmi við leiðbeiningar um gerð og frágang rotþróa í sveitarfélaginu.  Framræsla er jafnframt á ábyrgð lóðareiganda.                               
Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og verður þinglýst kvöð þess efnis.
Kaupandi skuldbindur sig til að klára byggingu húsa eigi síðar en tveimur árum eftir undirritun kaupsamnings og afhendingu eignar.
Kaupandi er upplýstur um að hann ásamt öðrum eigendum frístundahúsa á svæðinu eða félag á þeirra vegum sjái um viðhald og rekstur hliðs og vegar.
Kaupandi er upplýstur um að hann greiðir öll opinber gjöld og tryggingar vegna eignarinnar og árgjald í sumarhúsafélag þegar/ef það verður lagt á.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 netf. gudrunlilja@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.  4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langimelur 27
Skoða eignina Langimelur 27
Langimelur 27
276 Mosfellsbær
Jörð/Lóð
10.900.000 kr.
Skoða eignina Langimelur 18
Skoða eignina Langimelur 18
Langimelur 18
276 Mosfellsbær
Jörð/Lóð
10.500.000 kr.
Skoða eignina Sandsárbakki 7
Skoða eignina Sandsárbakki 7
Sandsárbakki 7
276 Mosfellsbær
4462 m2
Jörð/Lóð
2 þ.kr./m2
10.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache