LIND Fasteignasala & Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu:
Bjarta & vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á annarri hæð, með stæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Stakkholt 2A, 105 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is
Skráð stærð eignar skv. FMR er 82,6 fm, og skiptist í íbúð 70,7 fm og geymslu 11,9 fm. Íbúðin er merkt 02-05.Eignin skiptist í:Forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu & baðherbergi. Eigninni fylgir einnig bílastæði í bílakjallara, geymsla og svalir.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: með fataskáp og harðparketi á gólfi.
-Rýmið getur einnig nýst fyrir
vinnuaðstöðu.
Stofa & borðstofa: eru samliggjandi með eldhúsi. Rýmið er bjart og rúmgott með harðparketi á gólfi.
-Útgengt er úr stofu út á
svalir.
Eldhús: með dökkbrúnni eldhúsinnréttingu með hvítum efri skápum, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og lofthengdum háfi.
Svefnherbergi: rúmgott með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt gólf og veggir að hluta. Með upphengdri innréttingu með handlaug og spegla skáp fyrir ofan. "Walk-in" sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
-Inni á baðherbergi er innrétting og tengi fyrir
þvottavél og þurrkara.
Bílastæði í upphitaðri bílageymslu.
Geymsla: er 11,9 fm, staðsett í sameign.
Sameiginleg
hjóla og vagnageymsla í sameign.
Innréttingar í íbúðinni eru
sérsmíðaðar frá GKS.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.isKostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 3.800 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.