
Viltu fasteignir kynna gott 208,6m2 einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergi, eitt studíóherbergi, sólstofu og bílskúr á góðum stað í Vogum.
Stór afgirt lóð með sólpalli til suðurs, heitum potti og góðum geymsluskúr.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum fyrir eignina.
Um er að ræða skemmtilega skipulagða eign sem hefur fengið gott viðhald gegnum árin. Sami eigandi frá upphafi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Að utan er gengið í góða flísalagða forstofu með fataskáp. Þaðan er hægt að ganga beint í eitt svefherbergi og inn í gang/hol í miðrými hússins.
Stofa/Borðstofa/sjónvarpsstofa: Samliggjandi í stóru og björtu rými. Þaðan er hægt að gang í sólstofu og úr henni áfram út í garð.
Sólstofa: Um 20m2 sólstofa með gólfhita er út frá stofu.
Eldhús Sérsmíðuð sprautulökkuð hvít innrétting. Ofn í vinnuhæð, pláss fyrir uppþvottavél. Góður eldhúskrökur fyrir eldhúsborð við glugga. Skv. teikningu er möguleiki að opna eldhús meira inn í stofu/borðstofu.
Vaskahús inngangur: Út frá eldhúsi er þvottahús með góðri innréttingu ásamt fatahengi. Þaðan er hægt að ganga beint út á bílaplan og nýta eigendur þennan inngang sem daglegan inngang í húsið.
Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað á vandaðan máta. Flísalagt í hólf gólf. Rúmgóð "labb-inn" sturta með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni og gólfhiti. Innrétting með góðu geymslurými.
Herbergi 1: Mjög rúmgott hjónaherbergi með stórum innbyggðum fataskáp/fatahorni.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart herbergi með fataskáp.
Herbergi 3: Út frá forstofu. Rúmgott og bjart herbergi með fataskáp.
Herbergi 4: Frá sólstofu er gengið í íbúðarherbergi fyrir aftan bílskúr. Rúmgott herbergi með sér snyrtingu. Hægt að nýta á marga skemmtilega vegu
Bílskúr: Breiður og góður bílskúr bæði með gönguhurð út og bílskúrshurð. Einnig er hægt að ganga í bílskúr beint innan úr húsinu. Bílskúrinn er heitur og með heitu/köldu vatni. Yfir bílskúr er geymsluloft(ekki full lofthæð)
Lóð: Húsið stendur á um 750m2 lóð og eru góð útisvæði bæði norðan og sunnan við húsið. Lóðin að sunnan er afgirt með viðhaldsfrírri klæðningu og þar er sólpallur, heitur pottur og vönduð útigeymsla.
Frábært tækifæri til að eignast gott einbýli með allskonar skemmtilega möguleika.
Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
225 | 192,6 | 169,9 | ||
170 | 197,9 | 148,9 | ||
210 | 201,3 | 198,9 | ||
301 | 204,3 | 85,9 | ||
815 | 183,6 | 82,5 | ||
815 | 204,8 | 87,9 |