Skráð 4. mars 2026

Mýrarbraut 1

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-805
10,700 m2
Verð
6.900.000 kr.
Fermetraverð
645 kr./m2
Fasteignamat
4.050.000 kr.
Mynd af Árni Björn Erlingsson
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Fasteignanúmer
2344920
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð skammt frá einum fallegasta golfvelli landsins.

Árni Björn Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna lóðina Mýrarbraut 1
, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign með fastanúmer 234-4920 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Mýrarbraut 1 er skráð samkv. HMS:  F2344920, birt stærð 10.700 fm.

Mýrarbraut er í skipulagðri frístundabyggðin sem stendur við Kiðjabergsveg.
Lóðin er í tæpum klukkutíma akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni á svæðinu.

Stutt er í þjónustu:
Á Borg er sundlaug, 
Stutt er á Selfoss, Laugarvatn, Reykholt eða Gullfoss og Geysi.
Góður Átján holu golfvöllur er í Kiðjabergi sem er einungis rúmum 4 km frá og svo er golfvöllurinn Öndverðarnesi ekki langt frá heldur.
Stutt að fara á fjöll á Lyngdalsheiði og að Skjaldbreið svo eitthvað sé nefnt.


Nánari upplýsingar veitir:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin