Fasteignasalan TORG kynnir: Rúmgóð og falleg 4ra herbergja 114,3 fm neðri hæð með sérinngangi á frábærum útsýnisstað við Austurkór 33.
Íbúðin skiptist í forstofu, fataherbergi, 3 svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Sérafnotareitur og verönd með geymslu í garðinum. Einstaklega falleg og vel skipulögð eign á vinsælum stað.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Fasteignasali, í síma 822-2225, netfang: thora@fstorg.is.Sækja söluyfirlit hérNánari lýsing:Forstofa með flísalagt gólf, inn af forstofu er fataherbergi með hillum og slám.
Eldhús og stofa eru í opnu og mjög björtu rými. Ljóst harðparket á gólfum. Úr stofunni er gengið út á skjólgóða sér-verönd og þaðan í sameiginlegan garð.
Eldhús er með vandaðri innréttingu og tækjum, steinn á borðum, innbyggðri uppþvottavél og stórri eyju með skápum.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
barnaherbergi eru 2 bæði rúmgóð með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og vönduð innrétting.
Þvottahús er inn af baðherbergi með geymsluhillum og skolvaksi, flísar á gólfi.
Sér geymsla er með inngang frá verönd.
Einstaklega falleg og vel skipulögð eign þar sem stutt er í útivistarsvæði, skóla og íþróttasvæði.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Fasteignasali, í síma 822-2225, netfang: thora@fstorg.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.