Miklaborg kynnir: Til sölu rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi á 3. hæð ásamt bílastæði í bílageymslu. Eignin er skráð 105,8 fm og skiptist í stórt alrými með stofum og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og tvennar svalir. Íbúðin er með fallegum eikar innréttingum, gólfhita og gólfsíðum gluggum. Í bílageymslu er þvottaaðstaða fyrir bíla. Staðsetning er í nálægð við miðbæ Hafnarfjarðar og stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.
Sölugögn er hægt að nálgast hér
Nánari lýsing: Forstofa með fataskápum. Stórt og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Út frá stofu eru góðar svalir. Falleg eikar eldhúsinnrétting með eyjuborði og góðum tækjum. Inn af eldhúsi er þvottahús með vinnuborði og skolvask.
Hjónaherbergi með fataskáp og útgengi út á svalir. Annað svefnherbergi við hlið hjónaherbergis. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Gólf sturta með glervegg, innrétting með vask og upphengt salerni. Gólfefni íbúðar er viðarparket á öllu nema flísar á þvottahúsi og baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni. Í kjallara er sér geymsla , 8,3 fm með hillum ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Sér stæði fylgir í bílgeymslu en þar eru möguleikar á rafhleðslutengingu til staðar. Þvottaaðstaða fyrir bíla er í bílgeymslunni. Bílastæði eru fyrir framan húsið fyrir gesti. Húsið og umhverfi er allt hið snyrtilegasta og er hverfið þekkt fyrir mikil gæði og snyrtimennsku.
Eignin getur verið laus fljótlega.
Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingu er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni eða í link hér að ofan.
Allar upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsosn löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 22/06/2016 | 33.300.000 kr. | 38.500.000 kr. | 105.8 m2 | 363.894 kr. | Já |
| 15/07/2011 | 11.050.000 kr. | 75.228.000 kr. | 310.3 m2 | 242.436 kr. | Nei |
| 11/05/2011 | 11.050.000 kr. | 655.000.000 kr. | 9456.6 m2 | 69.263 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
220 | 105,8 | 96,9 | ||
221 | 116 | 87,9 | ||
221 | 113,7 | 81,9 | ||
221 | 95,5 | 75 | ||
221 | 109 | 80,5 | ||
221 | 107,6 | 80,5 |