Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2026

Lofnarbrunnur 8

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
220.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
725.828 kr./m2
Brunabótamat
129.000.000 kr.
Byggt 2020
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23068711
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:

Virkilega fallegt og vel skipulagt 220,3 fm parhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr við Lofnarbrunn 8 í Reykjavík. 
Íbúðarhúsið er 193,0 fm og bílskúrinn er 27,3 fm, byggt árið 2020. 

Aðalhæð skiptist í: Anddyri, gestasalerni, bílskúr, geymslu, gang, borðstofu, stofu og eldhús. Útgengi á svalir út frá borðstofu og geymslu.
Neðri hæð skiptist í: Hol, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

Gengið er inn á aðalhæð frá bílaplani sem er með lokuðu kerfi á snjóbræðslu og tveimur skilgreindum bílastæðum, hægt að koma þriðja bílnum, tengi fyrir rafbílahleðslu. Eignin stendur á 711,0 fm lóð og er öll baklóðin afgirt með stórri verönd, heitum potti og útisturtu. Baklóðin er í suður. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu í dag en hægt er að bæta við fjórða herberginu þar sem sjónvarpsholið er á neðri hæð. Rúmgott baðherbergi með baðkari og sturtu á neðri hæð og gestasalerni á aðalhæð. Í húsinu er vandað efnisval á gólfefnum, innihurðum, innréttingum og tækjum.

✅ Fallegt fjölskylduhús með innbyggðum bílskúr
✅ Stór afgirtur pallur í suður með heitum potti og útisturtu
✅ Þrjú rúmgóð svefnherbergi auk sjónvarpshols sem gæti verið 4. herbergið
✅ Frábær staðsetning stutt frá skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, bókasafni og sundlaug
✅ Stutt í ósnortna náttúru við Úlfarsfell, Reynisvatn og Hólmsheiði 


Nánari lýsing
Forstofa: Rúmgóð með vinylflísum á gólfi.
Gestasalerni: inn af forstofu, upphengt salerni, baðinnrétting, vegghengdur skápur, spegill með lýsingu, vinylflísar á gólfi. 
Bílskúr: Inn af forstofu, epoxy á gólfi, innrétting á vegg. Rafdrifinn bílskúrhurð. Inn af bílskúr er geymsla með hillum og glugga og útgengi á svalir. Tengi fyrir bílahleðslu. 
Gangur: Innbyggður spegla fataskápur, harðparket á gólfi. 
Alrými: Samanstendur af borstofu, stofu og eldhúsi og úr gangi er stigi niður á neðri hæð. Úr borðstofu er útgengi á rúmgóðar og skjólgóðar svalir í suður. 
Eldhús: Ikea innrétting með nýlegum hnotu frontum, marmari á bekkjum og niður með eyju beggja megin. Í eyju er gott skúffupláss, span helluborð, lofthengdur háfur yfir, lítill vaskur með krana og er hægt að sitja við eyjuna á counter stólum. Við innréttingu á vegg eru tveir bakarofnar í vinnuhæð, tengi fyrir tvöfaldan ísskáp og innbyggð uppþvottavél. Fibo plötur á milli skápa, harðparket á gólfi. 
Stigi: Teppalagður með glerhandriðum. 
Svefnherbergin eru þrjú talsins: Barnaherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með fataskápum. Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi innaf og innangengt á baðherbergi. Út hjónaherbergi er einnig útgengi á baklóð. 
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari og sturtu með innbyggðum tækjum frá Vola, baðinnréttingu, vegghengdum skáp og spegli með lýsingu. Innangengt á bað úr holi og hjónaherbergi. 
Þvottahús: Hvít háglans innréttingar á tveimur veggjum með góðu geymsluplássi, vinnuborði og vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, epoxy á gólfi. 
Geymsla: Rúmgóð, epoxy á gólfi.  

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is 

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snæfríðargata 5
Snæfríðargata 5
270 Mosfellsbær
66,8 m2
Fjölbýlishús
211
957 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 27
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Maríugata 27
Maríugata 27
210 Garðabær
240,5 m2
Raðhús
614
761 þ.kr./m2
183.000.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
Efsta hæð
IMG_6193.JPG
Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
101 Reykjavík
236,3 m2
Fjölbýlishús
332
Fasteignamat 188.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Elliðabraut 16
Skoða eignina Elliðabraut 16
Elliðabraut 16
110 Reykjavík
56,3 m2
Fjölbýlishús
211
1064 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin