Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Björt og vel skipulögð 177,5 fm. hæð í þríbýlishúsi á eftirsóttum stað Hlíðunum í 105 Reykjavík við Grænuhlíð 17, þar af er sér 28,6 fm bílskúr.
Hæðin sem er 148,9 fm. að stærð, skiptist í rúmgott alrými með stofu og eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasaslerni og sér geymslu í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Bílskúrinn sem fylgir með eigninni er 28,6 fm og með aukinni lofthæð og bílastæðum fyrir framan bílskúrinn.
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isNánari lýsing: Innra skipulag íbúðarinnar er afar gott, með opnu og björtu alrými auk fjögurra svefnherbergja og tveggja baðherbergja.
Forstofa er með flísum á gólfi og hvítum innbyggðum fataskápum með gott skápapláss og speglum á tveimur skápahurðum. Gengið er inn af hægri hönd inn í bjart og samliggjandi alrými, stofu og borðstofu með parketi á gólfi. Stórir gluggar veita mikla birtu inn, útgengi er frá alrými út á stórar og góðar svalir til suðurs. Eldhúsið er með parket á gólfi og hvíta U-laga innréttingu með viðarborðplötum og flísum milli skápa. Ofn og örbylgjuofn eru í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, helluborð með kolasíu viftu þar fyrir ofan. Amerískur ísskápur fylgir einnig með. Gott vinnu-og skápapláss. Gluggi gefur góða birtu inn, borðkrókur er í enda eldhússins. Rými fyrir framan eldhúsið er opið, gæti nýst sem vinnuaðstaða. Svefnherbergisgangur er með þrjú rúmgóð svefnherbergi, parket á gólfi, fataskápur er í öðru af barnaherbergjunum en fataskápar inn í hjónaherbergi. Baðherbergið er með flísum á gólfi og marmara á veggjum. Baðkar með sturtu aðstöðu og hví innrétting með handlaug og gott skúffupláss. Speglaskápur þar fyrir ofan, en þar við hlið er salerni. Opnanlegur gluggi er inn á baðherbergi. Inn af forstofu er svo fjórða svefnherbergið, það er einnig mjög rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi. Þar við hlið er gestasalerni með salerni og handlaug, spegli og litlum skáp. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara auk sér geymslu íbúðarinnar. Einnig er sér útigeymsla undir útitröppum
Sér bílskúr með aukinni lofthæð og tveimur góðum bílastæðum fyrir framan. Bílskúrinn býður upp á góða geymslu- og vinnuaðstöðu.
Íbúðinni hefur verið vel viðhaldið og ýmsar endurbætur hafa verið gerðar, þar á meðal endurnýjun á ofnum og lögnum, auk þess sem gler hefur verið skipt út í tveimur af þremur hliðum hennar. Nýlega var þakkantur á húsi og bílskúr endurnýjaður, svalir flotaðar og þakrennum skipt út.
Grænahlíð er róleg og eftirsótt gata, miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla og háskóla.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700
af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-