Fasteignaleitin
Skráð 9. júní 2026

Laugarnesvegur 79

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
95.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
681.723 kr./m2
Fasteignamat
74.150.000 kr.
Brunabótamat
40.460.000 kr.
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1932
2. hæð · efsta
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2016835
Landnúmer
104050
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
forskalað timbur/steyptur kjallari
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað, rafmagnstöflur endurnýjaðar amk
Frárennslislagnir
Nýlega drenað kringum hús/frárennslislagnir ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir utan þakglugga (gler nýtt)
Þak
Endurnýjuð klæðning fyrir ca 15 árum, nýjar snjógildrur.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Lóð
38,42
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
**EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN**

Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna sérhæð á Laugarnesvegi 79, 105 Reykjavík. 

Mikið endurnýjuð efri sérhæð í tvíbýlishúsi í hinu sívinsæla Laugarneshverfi. Eignin er 3ja herbergja með sérinngangi. Nýr álklæddur garðskúr er séreign þessarar íbúðar. Þar er rúmgott þvottahús með góðu vinnuplássi auk þess sem þar getur verið geymsla eða afþreyingaraðstaða. Húsið er byggt 1931 en hefur verið mikið endurnýjað. Húsið er með steyptum kjallara og timbri á 2 efri hæðum þess með málaðri bárujárnsklæðningu. Nýr garðskúr í garði er sérsmíðaður úr timbri og klætt áli.  Stór gróinn garður er umhverfis húsið. Sérinnkeyrsla með snjóbræðslu sem rúmar amk 2 bíla.  Skv. HMS er uppgefin heildarstærð eignarhlutans 95,2 fm, en fv. bílskúr (26,3 fm) sem var á lóðinni var rifinn en telur enn í skráningu. Íbúðarhluti eignarinnar er  51,3 fm en gólfflötur er þó talsvert meiri,  geymsla í kjallara er 17,6 fm og nýi garðskúrinn þar sem áður stóð bílskúr 15 fm.  Raunstærð mældra fm er því 83,9 fm í dag (íbúð, geymsla og nýr garðskúr með þvottahúsi). 

      **SÆKTU SJÁLFVIRKT  SÖLUYFIRLIT HÉR**

     **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍÐRI SÝN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**

Nánari lýsing:
Inngangur er aftan við húsið. Sérinngangu, Kattalúga er á útidyrahurð. 
Forstofa: Nýlegt tepp á stiga sem liggur upp á hæð
Hol/gangur: Gangur tengir saman öll rými. Þar er niðurdraganlegur nýlegur háaloftsstigi, fatahengi og skápur. Harðparket.
Stofa/borðstofa: Er sjarmerandi og rúmgóð með tveimur gluggum. Stofan er að hluta til undir súð og því stærri en uppgefnir fm. Harðparket
Eldhús: Endurnýjað eldhús með ljósri viðarinnréttingu og mjög góðu vinnuplássi. Innréttingin er U-laga. Innbyggð 45 cm uppþvottavél, bakaraofn undir borði og span helluborð. Vínilflísar á gólfi og flísar á veggjum ofan borðplötu. Eldhúsið nýtist einstaklega vel með þessum hætti.
Baðherbergi: Talsvert endurnýjað, s.s. salerni, vaskaskápur, handlaug, flísar á vegg við vaskaskáp, Nýjar gólfþiljur settar og nýr vínildúkur á gólf. Lögn að handklæðaofni endurnýjuð sem og handklæðaofn. Baðkarið er snyrtilegt með sturtuaðstöðu. Þakgluggi sem er opnanlegur með nýlegu gleri. Hurð að lagnarými er við hlið salernis og þar er lítill geymslurými. 
Herbergi I: Rúmgott með glugga á gafli hússins. Fataskápur (2018) og hillur eftir einum vegg. Tvöföld gardínustöng. Harðparket á gólfi.
Herbergi II: Ágætlega rúmgott með kvisti. Nýlegur fataskápur. Rúllugardínur og gardínustöng. Harðparket.
Háaloft: Háaloft óeinangrað og hrátt, liggur eftir allri íbúðinni, háaloftsstigi.
Þvottahús/geymsla í sér garðskúr: Nýr garðskúr úr timbri og bárujárnsklæddur er þar sem áður stóð bílskúr og er 15 fm með ljósi, rafmagni og hitaveitu. Opnanlegur gluggi. Drenað var kringum hann. Þvottahússinnrétting er í honum eftir einum vegg og stálvaskur með köldu og heitu vatni. Nýtist sem þvottahús og hvað sem fólk vill, s.s. hjólageymsla, geymsla eða vinnuaðstaða. 
Sérgeymsla í kjallara: Mjög rúmgóð eða 17,6 fm. Óupphituð.
Sameign: Kjallarinn er einstakur og hrár, hann er undir öllu húsinu og eru öll rými þar opin, einnig sérgeymslan, en hægt að setja hurð ef vill. Búið er að grafa niður í gegnum botnplötu til að búa til mjóa gönguleið til að bæta lofthæðina, en allur fremri hlutinn næst inner með lítilli lofthæð svo maður gengur boginn og upp á stall að sameiginlega þvottahúsinu sem seljendur eru hættir að nota eftir að garðskúrinn komst í gagnið. Lofthæðin innar í kjallara (undir fremri hluta hússins) er er eðlilegri. Kjallarinn er mjög hrár og óinnréttaður. 
 
Framkvæmdasaga á eignatíma núverandi eigenda:
2025: Garðskúr (sérþvottahús): Byggður viðarskúr úr timbri sérsmíðaður frá Reisum, þar sem áður stóð holsteins bílskúr. Rafmagn, vatn og hiti lagt í skúrinn og ný þvottahúsinnrétting (IKEA). Frárennslirrör var lagt frá skúrnum að niðurfalli við innkeyrslu. Utanhúss: Tröppur að útidyrahurð lagaðar. Eldhús: Nýtt spanhelluborð 
2024: Garðskúr og lóð: Grunnur fyrir garðskúr steyptur. Einkabílastæði/Innkeyrsla hellulögð og ný snjóbræðslulögn í  innkeyrsluna. Ný girðing sett upp í bakgarði, á milli hússins og nýrra bygginga á Hallgerðargötu í eigu Búseta. Búseti sá um framkvæmdina, en viðhald Laugarnesvegsmegin er á ábyrgð húseigenda í okkar húsi.
2023: Gluggar: Nýir sérsmíðaðir gluggar settir í alla íbúðina, nema á baðherbergi, þar var skipt um gler. Herbergi II: Nýr fataskápur 
2022: Hol: Nýr háaloftsstigi með lofthlera 
2021: Baðherbergi: Nýjar gólffjalir á baðherbergi og nýjar lagnir lagðar að handklæðaofni. Nýr handklæðaofn, nýr baðskápur, vínyldúkur á gólf, nýjar flísar bak við salerni og vaskaskáp. Forstofa/hol: Nýtt teppi á stiga (Sisal frá Casa Mia), nýtt stigahandrið.
2020: Eldhús: Eldhús endurnýjað; Ný eldhúsinnrétting (IKEA),bakaraofn, eldavél og uppþvottavél, skipt um gólffjalir í eldhúsi og nýtt gólfefni lagt, vínylflísar, nýjar veggplötur í eldhúsi líka og veggflísar, nýjar lagnir í eldhúsi, eldhús málað. Baðherbergi: Nýtt salerni, baðvaskur og vaskaskápur. Þak og fylgihlutir: Nýjar þakrennur á allt húsið, snjógildrur settar á þakið til að verja þakrennurnar og blaðfang til að verjast laufblöðum.
2019: Dren: Nýtt dren lagt í kringum allt húsið, takkadúkur. Kjallari: Loftræsting sett upp í kjallaranum, kjallaratröppur dýpkaðar og inngangur í kjallara dýpkaður. 

Samandregið er um að ræða mikið endurnýjaða, bjarta og afar sjarmerandi 3ja herbergja efri sérhæð í risi í tvíbýlishúsi í vinsælu hverfi við Laugardalinn þar sem stutt er í allar stofnæðar og miðborgina. Leikskólarnir Hof og Laugasól, ásamt Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla eru í göngufæri. Laugalækur er nokkra metra frá húsinu með allri sinni þjónustu s.s. matvörubúð, kjötbúð, bakaríi og kaffishúsi. Einnig er stutt í Borgartúnið og sívinsæla útivistarsvæðið í Laugardalnum með sundlaug, skautahöll, Þróttaraheimilinu, Líkamsræktarstöð, fallegum göngu-og hjólaleiðum og Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum svo eitthvað sé nefnt. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 / gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 /  gylfi@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/04/201835.500.000 kr.30.000.000 kr.95.2 m2315.126 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1946
26.3 m2
Fasteignanúmer
2016835
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.660.000 kr.
Lýsing
Bílskúr er ekki lengur til staðar, var rifinn. Búið er að setja viðarskúr og byggja 15 fm þvottahús/ geymslu í staðinn þar. 
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2016835
Byggingarefni
timbur/bárujárnsklætt
Lýsing
15 fm garðskúr sérsmíðaður og er nýttur sem þvottahús og geymsla í dag. 

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin V1 íb 408
Bílastæði
Opið hús:20. júlí kl 17:00-17:30
Vesturvin V1 íb 408
101 Reykjavík
95.7 m2
Fjölbýlishús
312
1070 þ.kr./m2
102.400.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 208
Bílastæði
Opið hús:20. júlí kl 17:00-17:30
Vesturvin V1 íb 208
101 Reykjavík
94.2 m2
Fjölbýlishús
312
1030 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 11-13
Skipholt 11.jpg
Skoða eignina Skipholt 11-13
Skipholt 11-13
105 Reykjavík
81.7 m2
Fjölbýlishús
211
856 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Dalaland 5
Dalaland 5.jpg
Skoða eignina Dalaland 5
Dalaland 5
108 Reykjavík
84.4 m2
Fjölbýlishús
413
864 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin