Falleg og björt 4ra herbergja 92.3 fm endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi á þessum vinsæla stað í Þingholtunum. Íbúðin hefur að miklu leiti verið endurnýjuð m.a. öll gólfefni, eldhús og baðherbergi. Húsið sjálft er vel viðhaldið og hefur fengið gott viðhald síðustu ár, m.a. farið í frárennslis og skólplagnir 2026.
Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isEignin skiptist í: Anddyri, hol, stofu ásamt borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og er geymslu innan íbúðar.
Sameiginlegt þvottaherbergi og hjólageymsla í sameign.
Nánari lýsing á eign:
Sérinngangur í íbúðina norð-austan megin við húsið. Komið inn í rúmgott anddyri með fatahengi. Hol í miðju íbúðarinnar þar sem farið er inn í önnur rými. Alrýmið er nokkuð rúmgott með björtum vesturgluggum. Eldhúsið var endurnýjað 2021 með nýrri innréttingu, efri og neðri skápum, innbyggðri uppþvottavél. Barnaherbergi bæði með nýlegu parketi á gólfi. Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2025. Allt flísalagt með stórum ljósum flísum, walk-in sturta, upphengt salerni og falleg ljós innrétting. Geymsla með hillum er innan íbúðar. Sameiginlegt þvottaherbergi er í sameign og sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Framkvæmdir síðustu ár:
Skipt var um parket og innihurðir árið 2021 bæði frá Birgisson, ásamt því að eldhúsið var gert upp 2021.
Nýr stigahúsgluggi árið 2012
Skipt um þak á vesturhlið og viðgerð í kringum strompinn árið 2016
Skipt út glerhýsum og svölum á 4.hæð árið 2019
Stigagangur málaður árið 2022
Viðgerð á gafli (suð-austur) árið 2024
Nýtt baðherbergi árið 2026 og þá var grafið út og settar nýjar frárennslið og skólplagnir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.