Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynnir "Litla Holt", einbýlishús á Þingeyri, við Aðalstræti 22
Litla Holt er tveggja hæða timburhús með kjallara sem nú stendur við Aðalstræti 22 á Þingeyri er sagt byggt árið 1920. Í fasteignaskrá Íslands er það samtals skráð 103 m2. Talið er að húsið sé eldra, en það hafi verið flutt af Jóni Jónssyni skipstjóri utan úr Haukadal og inn á Þingeyri. Í Haukadal nefndist húsið Holt. Eftir að húsið var gert upp árið 2006 gaf núverandi eigandi því nafnið Holtsendi. Á skilti á húsinu stendur nú (2011) nafnið Litlaholt. Hús þetta var eitt af svokölluðum Holtshúsum í Haukadal, sem stóðu sunnan við Seltjörnina (t.d. Vésteinsholt og Brautarholt, sem enn standa). "upplýsingar fengnar af vefnum með hús í farangrinum".
Skipulag hússins er að það er komið inn í litla forstofu, þar til hliðar er baðherbergi, eldhús er staðsett inn af forstofu, vestan megin í húsinu á 1. hæð. Austan megin í húsinu eru tvö herbergi og lítil stofa, þá er stigi upp á 2. rishæð hússins, sem er unnt að nýta sem herbergi eða stofu. Kjallari er undir húsinu með gluggum á norður hlið hússins. Aðkoma að húsinu er góð, en suð-vestan megin við húsið er pallur með skjólveggjum.
Um er að ræða gamalt og fallegt timburhús sem stendur við Aðalstræti 22 á Þingeyri, það er m.a. í göngufæri við sundlaug og íþróttahús á staðnum.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
* Athygli er vakin á að eigandi eignarinnar hefur ekki búið í henni og hefur því takmarkaða vitneskju um ástand hennar. Áhugasömum er því bent á að skoða ástand eignarinnar vel. * Upplýsingar um sögu hússins fengnar af vefnum: https://husaflutningar.is/adalstraeti-22-thingeyri/
Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynnir "Litla Holt", einbýlishús á Þingeyri, við Aðalstræti 22
Litla Holt er tveggja hæða timburhús með kjallara sem nú stendur við Aðalstræti 22 á Þingeyri er sagt byggt árið 1920. Í fasteignaskrá Íslands er það samtals skráð 103 m2. Talið er að húsið sé eldra, en það hafi verið flutt af Jóni Jónssyni skipstjóri utan úr Haukadal og inn á Þingeyri. Í Haukadal nefndist húsið Holt. Eftir að húsið var gert upp árið 2006 gaf núverandi eigandi því nafnið Holtsendi. Á skilti á húsinu stendur nú (2011) nafnið Litlaholt. Hús þetta var eitt af svokölluðum Holtshúsum í Haukadal, sem stóðu sunnan við Seltjörnina (t.d. Vésteinsholt og Brautarholt, sem enn standa). "upplýsingar fengnar af vefnum með hús í farangrinum".
Skipulag hússins er að það er komið inn í litla forstofu, þar til hliðar er baðherbergi, eldhús er staðsett inn af forstofu, vestan megin í húsinu á 1. hæð. Austan megin í húsinu eru tvö herbergi og lítil stofa, þá er stigi upp á 2. rishæð hússins, sem er unnt að nýta sem herbergi eða stofu. Kjallari er undir húsinu með gluggum á norður hlið hússins. Aðkoma að húsinu er góð, en suð-vestan megin við húsið er pallur með skjólveggjum.
Um er að ræða gamalt og fallegt timburhús sem stendur við Aðalstræti 22 á Þingeyri, það er m.a. í göngufæri við sundlaug og íþróttahús á staðnum.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.