Fasteignaleitin
Skráð 16. nóv. 2026

Nonnahagi 7

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
270.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
701.774 kr./m2
Fasteignamat
146.450.000 kr.
Brunabótamat
168.700.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2022
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2505445
Landnúmer
228659
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt 2022
Raflagnir
Nýtt 2022
Frárennslislagnir
Nýtt 2022
Gluggar / Gler
Nýtt 2022
Þak
Nýtt 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Húsið er ekki komið með lokaúttekt vegna frágangs að utan, það verður klárað fyrir afhendingu.
Kasa fasteignir 461-2010.         ** Bókið einkaskoðun hjá Helga Steinari í síma 666-0999 eða helgi@kasafasteignir.is **

Kasa fasteignir kynna Nonnahaga 7 – Glæsilegt og rúmgott staðsteypt einbýlishús með innbyggðum bílskúr og kjallara á fallegum útsýnisstað á Akureyri. Heildarstærð eignarinnar er 270,6 fm. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, fallegt eldhús og björt stofa með stórum gluggum og glæsilegu útsýni yfir Pollinn og til fjalla.

Á aðalhæð skiptist eignin í forstofu, hol, eldhús með borðstofu, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Í kjallara eru fjölnota rými, geymsla og inntaksrými.


Nánari lýsing eignar:

Forstofa er með viðarlituðu vinylparketi og fallegri hvítri innréttingu með skápum, skúffum og opinni fataaðstöðu með viðaráferð. Glerhurð og gler til hliðar við hana hleypa góðri birtu inn í rýmið.
Hol tengir saman rými hússins. Viðarlitað vinylparket er samfellt yfir hol, stofu, eldhús og svefnherbergi og skapar fallega heildarmynd.
Eldhús og borðstofa eru saman í björtu og rúmgóðu rými. Í eldhúsi er glæsileg hvít innrétting með dökkum borðplötum og opnum hillum með viðaráferð. Stór eyja með helluborði, gott vinnu- og skápapláss ásamt bakaraofni og combiofni í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur með frysti. Rúmgóð borðaðstaða er við stóra glugga og frá eldhúsi er útgengt á lóð.
Stofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum og rennihurð sem ná niður að gólfi og njóta sín vel með útsýninu yfir Pollinn og fjallahringinn. Úr stofu er gengið út á yfirbyggða verönd.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum með viðaráferð og fallegu útsýni. Inn af herberginu er sérbaðherbergi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi er flísalagt í gráum tónum með fallegri innréttingu, handlaug, spegli, upphengdu salerni og sturtuaðstöðu með svörtum Vola blöndunartækjum.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð og björt með fataskápum og viðarlituðu gólfefni.
Aðalbaðherbergi er rúmgott og flísalagt í ljósum tónum. Þar er stór innrétting með viðaráferð, góðu skúffuplássi og stórum hringlaga spegli. Baðkar, sturta með glerþili og upphengt salerni. Gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús er með hvítri innréttingu, skolvaski, vinnuborði og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara undir borði. Góðir skápar og þurrkaðstaða. Innangengt er í bílskúr og stigi liggur niður í kjallara.
Bílskúr er innbyggður og skráður 38,4 fm. Stór innkeyrsluhurð og gönguhurð eru á framhlið. Kraftwerk verkfæraskápar í bílskúr fylgja með við sölu.

Kjallari:
Fjölnota rými eru í kjallara og nýtast í dag meðal annars sem sjónvarps-, tölvu- og leikjaaðstaða. Þar er gott viðbótarpláss fyrir tómstundir og afþreyingu.
Geymsla og inntaksrými eru einnig í kjallara.

Lóð og útisvæði:
Við húsið eru rúmgóð steypt útisvæði og steyptir skjólveggir með sjónsteypu ásamt geymsluskúr. Framan við hús er aðkoma að aðalinngangi og bílskúr. Úr stofu er gengið út á yfirbyggða verönd sem snýr að útsýninu yfir Pollinn og til fjalla. Hluti lóðar er graslagður. Frágangi lóðar og hluta útisvæða er ólokið en seljandi mun klára framkvæmdir fyrir afhendingu. Snjóbræðsla er í öllum steyptum stéttum og bílaplani.

- Allar innréttingar, fataskápar og innihurðar eru frá Tak innréttingum ( fyrir utan fataskápa í barnaherbergjum )
- Geymsluskúr er óeinangraður, búið verður að klæða hann við afhendingu.
- Innfelld lýsing í flesetum rýmum hússins.
- Loftadúkur er í öllum rýmum nema kjallara, þvottahúsi og bílskúr.
- KNX rafkerfi.
- Öflugt loftskiptikerfi.
- Útihurðar og gluggar eru Rationel timbur-ál.
- Glæsilegt útsýni yfir Pollinn og til fjalla.
- Pottasvæði með útsýni, lagnir fyrir hitaveitupott.
- Það á eftir að klára frágang á klæðningu og handriði á austurverönd. Seljandi klárar það fyrir afhendingu.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2022
38.4 m2
Fasteignanúmer
2505445
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.600.000 kr.

Myndir (67)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambastaðabraut 6
Opið hús:19. nóv. kl 16:30-17:00
Lambastaðabraut 6
170 Seltjarnarnes
245,4 m2
Einbýlishús
715
894 þ.kr./m2
219.500.000 kr.
Skoða eignina Starhólmi 18
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Starhólmi 18
Starhólmi 18
200 Kópavogur
268,6 m2
Einbýlishús
926
707 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Básendi 10
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Básendi 10
Básendi 10
108 Reykjavík
245,9 m2
Einbýlishús
624
Fasteignamat 107.300.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Byggðavegur 116
Skoða eignina Byggðavegur 116
Byggðavegur 116
600 Akureyri
218,6 m2
Einbýlishús
614
480 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin