VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Hólsakur, nýtt byggingaland í Ölfusi.
Um er að ræða nýjar eignarlóðir í landi Akurholts, Ölfusi. Íbúðalóðirnar eru frá 2700 - 3537 fm að stærð.
Samkvæmt deiliskipulagi fyrir svæðið er heimilt að byggja einbýlishús á einni eða tveimur hæðum og útihús (bílaskúr, gestahús, geymslu)
Fullunnið og samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið liggur fyrir og samþykkt af sveitafélaginu.
Landareignin selst í heilu lagi.Skipulag AkurholtSkipulag HólsakurSkipulagsgreinagerð AkurholtNánari lýsing:
Heildarstærð skipulagssvæðissins er 11ha og gert er ráð fyrir 25 einbýlishúsum á jafnmörgum lóðum skv aðalskipulagi.
Möguleiki er að einhverjar lóðir geti orðið parhúsalóðir.
Deiliskipulag gerir ráð fyrir 25 íbúðarlóðum, 2700 - 3537m² að stærð. Aðkoma að hverfinu er frá Akurholtsvegi í vestri.
Nýtingarhlutfall lóðar skal ekki vera meira en 0,15 og leyfilegt byggingarmagn aldrei meira en 1.000m². Innan byggingarreits er heimilt að reisa einbýlishús á einni eða tveim hæðum. Þá er heimilt að reisa útihús (bílskúr, gestahús, geymslu) eftir því sem nýtingahlutfall og skilmálar lóðar segja til um. Almennt er gert ráð fyrir einni íbúð í hverju einbýlishúsi, en heimilt er að innrétta aukaíbúð sem þó er óheimilt að aðskilja sem séreign. Frágengið yfirborð við húsvegg skal ekki vera neðar en 20cm undir uppgefinni plötuhæð og eru frávik frá því háð samþykki byggingarnefndar. Koma skal fyrir a.m.k. 2 bílastæðum á lóð.
Við lóðarmörk verður rafmagn, vatn og ljósleiðari.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.