Fasteignaleitin
Skráð 7. apríl 2026

Jöfursbás 5A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
102.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.800.000 kr.
Fermetraverð
862.974 kr./m2
Fasteignamat
81.950.000 kr.
Brunabótamat
73.200.000 kr.
HJ
Helgi Jóhannes Jónsson
Fasteignasali
Byggt 2024
3. hæð af 4
Garður
Svalir
Bílastæði
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2530339
Landnúmer
228385
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson Lgfs kynna :
*EFSTA HÆÐ * SUÐUR SVALIR * ÚTSÝNI TIL SJÁVAR * STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU * GOTT VERÐ *HLEÐSLUSTÖÐ Í BÍLASTÆÐI*
Jöfursbás 5A, Reykjavík - íbúð 0305.  3ja-4ra herbergja íbúð 102,9fm. á þriðju hæð, þar af geymsla 8,8fm. (merkt 0021).  Eigninni fylgir stæðí í bílahúsi merkt B042.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð og búið er að bæta þriðja svefnherberginu við á mjög smekklegan hátt, lítið mál að breyta til baka því veggjum sitja á parketi og því enginn skemmd ef þeir verða teknir. Gólfhiti í öllum gólfum íbúðar.  Svalir til suðurs út frá stofu. Útsýni til sjávar frá stofu og eldhúsi. Aukin lofhæð um 280cm. Ilströndin, fargufa og sjóböð í göngufæri. Eignin getur verið laus við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Nánari lýsing : 

Forstofa með fataskáp sem nær til lofts einnig búið að bæta við aukaskápum á ganginn, parket á gólfi. 
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts. Auka búr/tækjaskápur hefur verið bætt við í eldhúsi. Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.
Stofa og borðstofa með góðum gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni til sjávar.  
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts, parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp sem nær til lofts, parket á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi, þetta herbergi var útbúið út úr stofu. Veggir sitja ofan á parketinu og því afar einfalt að taka niður og breyta til fyrra horfs.
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Öll lýsing í íbúðinni er hönnuð að Lýsing og hönnun.

* SJÁVARSÝNI * AUKIN LOFTHÆÐ * SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR SEM NÁ TIL LOFTS * VANDAÐ PARKET Á GÓLFUM
* HITI Í ÖLLUM GÓLFUM  * GÓLFSÍÐIR GLUGGAR * QUARTZ STEINN Á BORÐPLÖTUM OG UNDIRLÍMDIR VASKAR
* SNJÓBRÆÐSLUKERFI Í GÖNGUSTÍGUM MEÐ FALLEGRI NÆTURLÝSINGU * SPENNANDI UMHVERFISSKIPULAG Í NÝJU HVERFI

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 27 talsins og þar af einungis 10 íbúðir í þessu stigahúsi, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 55 fm-180 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi. Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/12/202474.800.000 kr.79.900.000 kr.102.9 m2776.482 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2530339
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
42
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.450.000 kr.

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 305
Opið hús:31. okt. kl 13:00-13:30
Hnjúkamói 14 íb. 305
815 Þorlákshöfn
94,6 m2
Fjölbýlishús
43
686 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 11
Bílastæði
Skoða eignina Efstaleiti 11
Efstaleiti 11
103 Reykjavík
100,3 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Höfðagrund 10
67 ára og eldri
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Höfðagrund 10
Höfðagrund 10
300 Akranes
87,1 m2
Raðhús
312
688 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hrísmóar 10
Opið hús:04. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hrísmóar 10
Hrísmóar 10
210 Garðabær
93,7 m2
Fjölbýlishús
312
735 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin