Fasteignaleitin
Opið hús:09. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 5. nóv. 2026

Hagamelur 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
97.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.500.000 kr.
Fermetraverð
1.007.157 kr./m2
Brunabótamat
55.000.000 kr.
Byggt 1947
2. hæð
Svalir
Fasteignanúmer
20272501
Húsgerð
Fjölbýlishús

Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Hagamel 16 í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin hefur verið endurskipulögð og endurnýjuð að verulegu leyti á vandaðan og smekklegan hátt. Meðal annars var nýtt eldhús útbúið árið 2020, baðherbergi stækkað og endurnýjað, raflagnir og neysluvatnslagnir endurnýjaðar, skipt um ofna og gólfefni. Þá var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á ytra byrði hússins árið 2024. Skv, fasteignayfirliti HMS er íbúðin skráð alls 97,8 fm, þar af 5,6 fm geymsla í sameign. Á baklóð hússins eru hjólaskýli og sorpskýli. Þar er jafnframt inngangur í sameign þar sem íbúðinni fylgir geymsluskápur. 

Nánari lýsing
Forstofa/hol: Rúmgott og bjart hol með eikarparketi á gólfi. Þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.
Stofa: Falleg og björt stofa með stórum gluggum. Eikarparket á gólfi. Stofan er rúmgóð og opnast að hluta inn í eldhús og borðstofu.
Eldhús og borðstofa: Sérlega fallegt og rúmgott eldhús sem var útbúið árið 2020 í rými sem áður var önnur af tveimur stofum íbúðarinnar. Dökk IKEA-innrétting með góðu skápaplássi og stórri eldhúseyju með viðarborðplötu. Spanhelluborð, gufugleypir, bakaraofn og innbyggður ísskápur og frystir. Við eldhúsið er björt borðstofa með stórum gluggum á tvo vegu. Opið er á milli eldhúss og stofu sem skapar skemmtilegt og rúmgott alrými.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru björt og snyrtileg með eikarparketi á gólfum. Í hjónaherbergi er góð skápaaðstaða og stór gluggi.  Önnur herbergi nýtast vel sem barnaherbergi.
Baðherbergi: Fallegt og rúmgott baðherbergi sem var stækkað og endurnýjað árið 2020. Flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti og handklæðaofn. Upphengt salerni, viðarlituð baðinnrétting með vaski og rúmgóð sturta með glerþili og  innfelldum blöndunartækjum. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. 

Endurbætur:
Árið 2020 var íbúðin endurnýjuð að verulegu leyti:
Eldra eldhús fjarlægt og rýminu breytt í svefnherbergi. Nýtt eldhús útbúið í annarri stofu íbúðarinnar.
Baðherbergi stækkað og endurnýjað, meðal annars með nýjum innréttingum, tækjum, flísum og gólfhita.
Neysluvatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn og frárennslislagnir innan íbúðar endurnýjaðar.
Skipt um alla ofna í íbúðinni.
Allir gólffletir flotaðir, halli í gólfum leiðréttur og lagt þriggja stafa eikarparket með hljóðdúk undir.
Innihurðir og dyrakarmar endurnýjaðir. Upprunalegar millihurðir gerðar upp.
Raflagnir innan íbúðar endurnýjaðar, ný raftaug lögð að íbúð og rafmagnstafla endurnýjuð. Skipt um  rofa og tengla.
Nýr dyrasími settur upp.
Árið 2024 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á húsinu að utan. Meðal annars voru framkvæmdar steypuviðgerðir, þakkantur endursteyptur, svalir endurbyggðar, húsið endursteinað og þakrennur endurnýjaðar. Jafnframt var settur sérsmíðaður gluggi í eldhús, skipt um glugga og svalahurð í stofu og endurnýjað gler í gluggum tveggja svefnherbergja.

Staðsetning
Hagamelur 16 er á góðum stað í grónu og rótgrónu íbúðahverfi í Vesturbæ Reykjavíkur. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu, sundlaug Vesturbæjar, háskólasvæðið og miðborg Reykjavíkur. Þá eru fjölbreyttir möguleikar til útivistar og gönguferða í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veita: 

Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali í síma: 788-9030/ ulfar@fastborg.is  
Börkur Hrafnsson löggiltur fasteignasali  í síma 892-4944,  borkur@fastborg.is

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brávallagata 20
Skoða eignina Brávallagata 20
Brávallagata 20
101 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
312
832 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 26A
Hleðslustöð
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-13:15
Skoða eignina Bjarkardalur 26A
Bjarkardalur 26A
260 Reykjanesbær
85 m2
Fjölbýlishús
312
705 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 1 - íbúð 502
Bílastæði
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-13:30
Baughamar 1 - íbúð 502
221 Hafnarfjörður
80,1 m2
Fjölbýlishús
32
873 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Daggarvellir 4
Skoða eignina Daggarvellir 4
Daggarvellir 4
221 Hafnarfjörður
89 m2
Fjölbýlishús
313
770 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin