Fallegt og bjart einbýlishús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum bílskúr við Reykjabyggð 22, Mosfellsbæ.Góð aðkoma er að húsinu og laglegur garður umhverfis húsið
* 4 rúmgóð svefnherbergi og 1 minna
* Timburverönd með heitum og köldum potti* Möguleiki á stækkun ( sólstofu )
* Sérstæður tvöfaldur bílskúr með geymsluloftiViðhald síðustu ára tiltelur ma. :* Endurnýjað eldhús og settur gólfhiti
* Endurnýjuð innrétting í baðherbergi á efri hæð
* Endurnýjaður gluggi í stofu
Nánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samk. HMS er 214,6 m2, þar af húsið 172,6 m2 og bílskúrinn 42 m2. Eignin stendur á 750 m2 eignarlóð.
Gólflötur á efri hæð er þó stærri en skráning segir til um þar sem hluti er undir súð og þau rými nýtast vel.
Jarðhæð skiptist í forstofu, gestasalerni, stofur, eldhús, þvottahús og geymslu.Forstofa er flísalögð.
Gestasalerni er flísalagt með wc og innréttingu með handlaug og skúffum.
Stofur eru rúmgóðar með gluggum á þrjá vegu, fallegt viðarparket á gólfi og bjartir glugga setja fallegan svip á rýmið. Útgengt á viðarpall og út í garð.
Eldhús er með nýlegri U-laga innréttingu og flísum á gólfi. Bakarofn og combi-ofn í vinnuhæð, helluborð, vifta og innbyggð uppþvottavél. Bjartur borðkrókur við glugga. Þar er gólfhiti.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skápum, vinnuborði með skolvask og góðu skápaplássi. Útgengt út í garð.
Geymsla er þar innaf með hillum.
Efri hæð skiptist í sjónvarpshol, 4 svefnherbergi, lítið herbergi / geymslu og baðherbergi.Viðarstigi úr holi leiðir upp á 2. hæð
Sjónvarpshol er rúmgóð stofa með parket á gólfi.
4 rúmgóð svefnherbergi eru öll með fataskápum og parket á gólfi.
Lítið
herbergi er skráð sem
geymsla á teikningu, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari og sér-sturtu, upphengdu wc ásamt nýlegri innréttingu með handlaug og skúffum. Þar er gólfhiti.
Bílskúrinn er með tveimur innkeyrsluhurðum og einnig manngengur hús-megin, geymsluloft er þar yfir. Fordæmi eru fyrir því að breyta nýtingu rýmisins í íbúð.
Umhverfis húsið er gróinn og laglegur
garður og
timburverönd með skjólveggum, heitum og köldum potti er til suðvesturs.
Við bílskúrinn er hellulagt
bílaplan og snjóbræðsla er í
göngustíg að húsinu. Þar er einnig
hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.