Fasteignaleitin
Opið hús:22. nóv. kl 13:30-14:00
Skráð 17. nóv. 2026

Tröllakór 18-20

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
123.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
746.548 kr./m2
Brunabótamat
70.910.000 kr.
Byggt 2008
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23011451
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignasala kynnir til sölu rúmgóða og bjarta fjögurra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð (matshl. 0106) með sérinngangi, gluggum á þrjá vegu og stórri suður verönd að Tröllakór 18-20 í 201 Kópavogi. Eignin er skráð 123,1 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 116,1 m2 og geymsla (merkt 01-0014) 7 m2 , og samanstendur af anddyri, holi/skála, eldhúsi, borð- og setustofu, þremur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi í sér rými innan íbúðar auk sérgeymslu í kjallara. Þá fylgir eign sér bílastæði í lokaðri bílageymslu, sameiginleg hjólageymsla og sameiginleg vagnageymsla. Falleg og vel skipulögð íbúð innst í kyrrlátum botnlanga í jaðri byggðar þar sem stutt er grunn- og leikskóla, Kórinn íþróttasvæði sem og aðra þjónustu auk fallegarar náttúru. 

Nánari upplýsingar veita Brynjólfur Snorrason, brynjolfur@aldirfasteignir.is og/eða Sveinn Eyland, sveinn@aldirfasteignir.is

Nánari lýsing.
Anddyri:
Sérinngangur, rúmgott með flísum á gólfi. 
Hol/skáli: Tengir saman önnur rými eignar.
Eldhús: Stór innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og fyrir enda rýmis er borðkrókur undir glugga með opnanlegu fagi. 
Borð- og setustofa: Falleg og björt með stórum hornglugga og útgengi á stóra suður verönd eignar.
Svefnherbergi 1: Skráð 9 m2 á teikningu, vínildúkur á gólfi og fataskápur innan herbergis.
Svefnherbergi 2: Skráð 10 m2 á teikningu, vínildúkur á gólfi, fataskápur innan herbergis. 
Hjónaherbergi: Skráð 15 m2 á teikningu, vínildúkur á gólfi, stórir fataskápar innan herbergis og horngluggi. 
Baðherbergi: Falleg innrétting með góðum neðri skápum og spegli fyrir ofan handlaug. Vegghengt WC, baðkar, sér sturtuklefi, handklæðaofn auk opnanlegs glugga fyrir ofan baðkar. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 
Þvottahús: Hvít innrétting með ágætu vinnuborði, hillum þar fyrir ofan, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og flísar á gólfi. 
Á gólfum íbúðar er fallegt vínilparket utan andyris, baðherbergis og þvottahúss þar sem eru flísar. 

Í kjallara húseignar er sérgeymsla íbúðar, sameiginleg hjólageymsla, önnur sameiginleg vagnageymsla auk þess sem eign tilheyrir sér stæði (merkt 01B20) í lokuðum bílakjallara þar sem einnig er þvottaaðstaða. 

Falleg og vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru. 

Nánari upplýsingar veita Brynjólfur Snorrason, brynjolfur@aldirfasteignir.is og/eða Sveinn Eyland, sveinn@aldirfasteignir.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hrísmóar 5
3D Sýn
Efsta hæð
Skoða eignina Hrísmóar 5
Hrísmóar 5
210 Garðabær
115,2 m2
Fjölbýlishús
312
737 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngmóar 16
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Lyngmóar 16
Lyngmóar 16
210 Garðabær
113,8 m2
Fjölbýlishús
413
658 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 101
Bílastæði
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Vorbraut 14 íb 101
210 Garðabær
115 m2
Fjölbýlishús
43
1025 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (104)
6d360115-47a1-4608-adb1-89cdbf6cd988.png
Vorbraut 14 (104)
210 Garðabær
115,6 m2
Fjölbýlishús
322
907 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin