Fasteignaleitin
Skráð 19. okt. 2026

Hátún 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
133.2 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
825.075 kr./m2
Brunabótamat
74.550.000 kr.
Byggt 1961
Svalir
Heitur pottur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20102622
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir fasteignir kynna til sölu glæsilega íbúð á 9. (efstu) hæð og með gluggum á þrjá vegu að Hátúni 6 í 105 Reykjavík. Íbúðin samanstendur af anddyri, gang, sjónvarps-, setu- og borðstofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottaherbergi, barnaherbergi/skrifstofu og hjónaherbergi með útgengi á stórar suðursvalir. Frá stofu er einnig útgengt á svalir í norður. Árið 2007 var byggt við húsið, íbúðin stækkuð og endurnýjuð að fullu.  Fágæt eign miðsvæðis í Reykjavík!

Ath. Eignin verður ekki sýnd í opnu húsi en hægt er að bóka einkaskoðun hjá Brynjólfi, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is


Nánari lýsing.
Sameign á hæð: aðeins fyrir tvær íbúðir, snyrtileg, flísar á gólfi, innfelld lýsing í lofti. 
Anddyri: Flísar á gólfi, ágætur fataskápur og innfelld lýsing í lofti.
Sjónvarsstofa/hol á teikningu: Ágætlega rúmgott, innbyggðar hillur, flísar á gólfi og innfelld lýsing í lofti. Fallegur arin skilur á milli sjónvarps- og setustofu. 
Setu- og borðstofa: Aukin lofthæð, innfelld lýsing, gólfsíðir gluggar og útgengi á svalir sem liggja meðfram endilangri íbúðinni og bjóða upp á óhindrað útsýni til hafs og fjalla. 
Eldhús: Stór og falleg innrétting, góð vinnuaðstaða, mikið skápapláss, vönduð tæki, steinn á borðum, innfelld lýsing í lofti og parket á gólfi. 
Baðherbergi: Falleg innrétting með borðplötu úr steini, vegghengt WC og flísalagður sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar og í rými er þakgluggi.
Þvottahús: Inn af baðherbergi, góð vinnuaðstaða, flísar á gólfi og á veggjum. 
Skrifstofa: Parket á gólfi, innbyggðar hillur og stór gluggi. 
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott, parket á gólfi, innfelld lýsing í loftum, góðir fataskápar beggja vegna í herberginu og útgengi á stórar (23,6 m2) suður svalir eignar þar sem er heitur pottur. 
Geymsla: Rúmgóð geymsla er á hæðinni en auk þess tilheyrir eigninni önnur geymsla í kjallara sem ekki er í heildarfermetratölu íbúðar. 

Allar innréttingar íbúðar eru sérsmíðaðar eftir teikningum Guðbjargar Magnúsdóttur innanhúsarkitekts, sem hannaði íbúðina að innan, á hæðinni eru einungis tvær íbúðir og læsing er á lyftunni upp á 9. hæð svo þangað komast einungis íbúar þeirrar hæðar.

Skv. upplýsingum frá seljanda voru vatns-, og raflagnir endurnýjaðar árið 2007 ásamt því að gluggar og gler voru endurnýjuð sem og þak húseignar.

Einstök eign miðsvæðis í Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (326)
Bílastæði
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
Fálkahlíð 5 (326)
102 Reykjavík
128,4 m2
Fjölbýlishús
413
957 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 3
Bílastæði
Skoða eignina Kuggavogur 3
Kuggavogur 3
104 Reykjavík
109,2 m2
Fjölbýlishús
32
777 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 501
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 501
220 Hafnarfjörður
126,5 m2
Fjölbýlishús
312
1240 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 601
Bílastæði
Efsta hæð
Baughamar 5 íb. 601
221 Hafnarfjörður
154,7 m2
Fjölbýlishús
323
908 þ.kr./m2
140.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin