Valborg fasteignasala kynnir Árgilshraun 2 í einkasölu.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Um er að ræða fullgerðan bílskúr og veglegt heilsárshús í byggingu. Lóðin er gróin og stendur í skipulagðri frístundabyggð í landi Svínhaga Heklubyggð. Lóðin er 11200,0 m² m², eignarlóð. Landið er mjög gróið en búið er að planta miklum fjölda trjáa og eru fallegir, skjólgóðir lundir á svæðinu. Einnig er óheft útsýni að ánni og fjallasýn mikil.
Á landinu stendur fullbyggður bílskúr sem í dag er innréttaður sem studioíbúð. Þar er salerni og eldhús og flísar á gólfi. Rafknúin bílskúrshurð og gönguhurð á hlið bílskúrsins. Bílskúrinn er 28,4m² að stærð. Í byggingu er sumarhús en komin er steypt plata og búið er að kubba upp tæplega helminginn af veggjunum. Allt efni til að klára uppkubbun fylgir með. Stærð sumarhússins er 147m².Teikning húsinns gerir ráð fyrir þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi og mjög rúmgóðri stofu, borðstofu og koníaksstofu. Þá er gert ráð fyrir kamínu í húsinu. Gert er ráð fyrir gólfsíðum gluggum og skjólgóðum palli fyrir framan húsið. Nostrað hefur verið við umhverfi hússins. Vegleg hleðsla er í innreiðinni og við bílastæði og einnig hefur verið sett upp falleg lýsing við bílastæðin. Þá hefur verið plantað mörg hundruð trjáplöntum ýmiskonar og ræktaðir upp túnbalar inn á milli trjánna. Á þessum reit má finna tilkomumikið útsýni til fjalla og að hálendi, útsýni að ánni og öllu hennar sjarmerandi umhverfi, skjólgóða lundi á milli trjánna og fallegar gönguleiðir allt um kring.
Ekið er að Árgilshrauni frá þjóðvegi 1 fram hjá Hellu og beygt inn á Rangárvallaveg nr. 264 og svo aftur inn á Þingskálavegi nr. 268 og ekið sem leið liggur að skilti merkt Svínhagi. Þar er kort sem vísar leiðina að Árgilshrauni 2.
Landið er þáttakandi í verkefninu Hekluskógar, og fær árlega úthlutað birkiplöntum til gróðursetningar.
Sumarhúsafélag er á svæðinu sem sér um sameiginlega hagsmuni.
Sjá staðsetningu lóðar hér:HekubyggðNánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.