Fasteignaleitin
Skráð 1. maí 2026

Hrísmóar 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
118.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.500.000 kr.
Fermetraverð
702.271 kr./m2
Fasteignamat
82.150.000 kr.
Brunabótamat
62.700.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2070755
Landnúmer
118835
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Eldri timburgluggar málaðir
Þak
Óþekkt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austur og suður
Upphitun
Ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Skv. yfirlýisngu húsfélags eru engar framkvæmdir eru yfirstandandi og engar framkvæmdir eru væntanlegar. Í aðalfundagerð frá maí 2026 er tekið fram að fara þurfi í gluggaframkvæmdir næstu 2-3 árin. Skv. gjaldkera hússins er þar átt við framhlið hússins (vestur) en farið var yfir glugga og skipt um gluggalista austan megin 2019. Rætt hefur verið um að skipta um útidyr og íbúa falið að fá tilboð í það.
Gallar
Skv. aðalfundagerð frá maí 2026 var rætt um að borið hafi hafi á leka í þremur íbúðum á 1. og 2. hæð. Samkvæmt gjaldkera hússins hafa umræddir lekar verið skoðaðir og talið er að búið sé að koma í veg fyrir þá (án þess auðvitað að hægt sé að lofa því). Útfelling er í vegg í lofti stofu þessar eignar sem talið er af eiganda að sé vegna eldri sprungu. Móða er í gleri inn á þvottahúsi. Tveir íbúar, þ.m.t. seljandi hafa nefnt að krafturinní heita vatninu sé orðinn minni. Aðrir hafa ekki fundið fyrir því.
Valhöll fasteignasala kynnir: fallega, bjarta og vel skipulögð 3-4ra herbergja enda íbúð ásamt bílskúr á vinsælum stað í Garðabæ. Íbúðin er á 2. hæð hæð með fallegu útsýni. Eignin er skráð 118,9 m2 og samanstendur af anddyri, holi, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu í sameign um 8fm. Þar er einnig sameiginleg hjólageymsla. 18 m2 bílskúr fylgir eigninni. Góðar suðaustur svalir eru beint út frá stofu. Húsið var múrviðgert og málað 2021. Nýtt parket er á íbúðinni og baherbergi var uppfært fyrir um 6 árum. Í dag er íbúðin með tveimur svefnherbergjum en fordæmi eru fyrir því að bæta við herbergi við enda stofu.

EIGNIN AFHENDIST VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS.


Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen lögm. og lögg. fasteignasala í gegnum netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.

Eignin er skráð skv. HMS alls 118,9 fm, þar af er bílskúr 18 m2. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Frá sameign er gengið inn forstofu með skóskápum. Flísar á gólfi. Forstofuskápur inni á gangi.
Eldhús: Falleg en upprunaleg innrétting. Möguleiki að opna eldhús betur inn í stofu/borðstofu. Flísar á gólfi.
Þottahús: Þvottahús er inn af baðherbergi. Góð innrétting með miklu skápaplássi, vinnuborði og ræstivaski. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Stofa / borðstofa: Stór og björt með gluggum á þrjá vegu. Útgengi er út á góðar suðaustur svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Bjart og gott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Bjart og rúmgott með góðri innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, Flísar í hólf og gólf.
Bílskúr: Góður skúr með hita, heitu og köldu vatni, vinnuborði og hurðaopnara. Flísar á gólfi.
Geymsla: Í sameign er 7,9 fm geymsla.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign. 
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirstóttum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.

Framkvæmdarsaga:
Skipt var um gólfefni íbúðar í janúar 2026
Skipt var gluggalista um austan megin hússins árið 2019
Blokkinn var máluð og múrviðgerð árið 2020  
Nýtt teppi og málaður stigagangur árið 2023 
Ljós í stigagangi uppfærð og breytt í led ljós og skipt um rofa árið 2023 

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:  
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Arnarás 12C
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Arnarás 12C
Arnarás 12C
210 Garðabær
123.4 m2
Fjölbýlishús
312
899 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Skoða eignina Víðilundur 18d
Skoða eignina Víðilundur 18d
Víðilundur 18d
600 Akureyri
99.9 m2
Fjölbýlishús
312
600 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Spítalavegur 15 efri hæð
Efsta hæð
Spítalavegur 15 efri hæð
600 Akureyri
131 m2
Fjölbýlishús
513
485 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Skoða eignina Klettaborg 38
Skoða eignina Klettaborg 38
Klettaborg 38
600 Akureyri
116.5 m2
Raðhús
413
720 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin