Atvinnueign kynnir til LEIGU 236,1 fm. sérlega gott og mjög vel staðsett verslunarhúsnæði við Dalshraun 17.
Um er að ræða endarýmið þar sem Bílanaust er/var til húsa.
Getur hentað vel undir veitingarekstur, þjónustustarfsemi eða verslun. Húsið er byggt árið 1997 og er staðsteypt og klætt að utan með steni klæðningu. Lofhæðin í húsinu er frá 3,9m í 5,1m í bita fyrir miðju.
Aðkoma að húsinu er góð og er sameiginileg lóð malbikuð.
Allar nánari upplýsingar veitir: Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari síma 898 5599 eða halldor@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is
- Atvinnueignir eru okkar fag -