Byr fasteignasala kynnir í einkasölu HAFRAFELL 4 , 701 Egilsstaðir. Einbýlishús á þremur hæðum með stakstæðum bílskúr.Eignin er í næsta nágrenni við Vök baths.
Smellið hér fyrir staðsetningu.Eignin skiptist í einbýlishús byggt árið 1925, íbúð 238.2 m² og bílskúr byggður árið 1993, 49.5 m², samtals 287.7 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, eldhús með búri, stofa og borðstofa, fjögur svefnherbergi, eitt baðherbergi og eitt salerni, þvottahús, mörg geymslurými í kjallara og gott geymslupláss í risi. Stakstæður bílskúr og köld geymsla.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing:
Einbýlishús á þremur hæðum.Neðri íbúðarhæð
Anddyri, flísar á gólfi, þaðan liggur gangur að öðrum rýmum.
Gangur, liggur frá anddyri, að öðrum rýmum eignarinnar og að stiga að efri hæð og að stiga að kjallara. Harðparket á gólfi.
Eldhús, U-laga, upprunaleg innrétting, eldavél, vifta, gert ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, parket á gólfi. Búr inn af eldhúsi.
Stofa, parket á gólfi.
Borðstofa, parket á gólfi.
Salerni, flísar á gólfi, vaskinnrétting, standandi salerni.
Þvottahús, uppgert 2018,
epoxy gólf, útgengt í bakgarð. Innrétting, pláss fyrir tvær vélar.
Efri íbúðarhæð
Gangur með parket á gólfi, þaðan er gengið inn í önnur rými og liggur stigi þaðan upp á háaloft.
Herbergi I, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi II, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi III, dúkur á gólfi, notað sem skrifstofa.
Herbergi IIII, dúkur á gólfi.
Baðherbergi I, uppgert 2010, dúkur á gólfi, vaskinnrétting, vegghengt salerni og sturtuklefi, fjórfaldur fataskápur.
Ris er yfir allri hæðinni með timburgólfi. Einangrun er í þaki. Gott geymslupláss.
Kjallari, gengið er inn í kjallara af bílastæði. Málað gólf í flestum rýmum. Þar er að finna nokkur rými/geymslur, með fjölbreytta nýtingarmöguleika. Í einu rými eru lagnir
með heitu og köldu vatni. Innangengur stigi er úr kjallara sem liggur upp að gangi á neðri hæð hússins.
Bílskúr er með ómálað gólf, gryfja er undir bílskúr. Sér tafla og mælir fyrir bílskúrinn, mælir staðsettur inni í búri. Affall af húsinu hitar upp bílskúrinn. Heitt og kalt vatn og vaskur. Köld geymsla/skýli er áföst bílskúrnum.
Hafrafell 4 er einbýlishús á þremur hæðum með risi. Um er að ræða rúmgóða eign með mikla möguleika á friðsælum stað í Fellum.
Bílaplan er steypt að hluta. Búið er að endurnýja þak, glugga og hurðir, og endurnýja eignina að hluta að innan. Búið að tengja 3ja fasa rafmagn í box en ekki búið að tengja inn í bílskúr. Ljósleiðari er kominn í hús og var hann lagður um leið og hitaveitan var tekin inn. Ofnalagnir hafa verið endurnýjaðar og flestir ofnar. Lóðin er gróin með fjölbreyttum gróðri, meðal annars með rifsberjum, hindberjum og kúmen.
Lóð er 1.000,0 m², leigulóð.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-3276. Hafrafell 4.Stærð: Íbúð 238.2 m². Bílskúr 49.5 m² Samtals 287.7 m².
Brunabótamat: 115.500.000 kr.
Fasteignamat: 38.100.000 kr. - Fyrirhugað fasteignamat 2027: 40.300.000 kr.
Byggingarár: 1925.
Byggingarefni: Steypt.
Eignarhald:01.0001 Geymsla 79,4 Brúttó m².
01.0101 Íbúð á hæð 79,4 Brúttó m².
01.0201 Íbúðarherb í risi 79.4 Brúttó m².
02.0101 Bílgeymsla 49.5 Brúttó m².