Fasteignaleitin
Opið hús:10. júní kl 12:00-12:30
Skráð 9. júní 2026

Eirhöfði 7C íb.604

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
119.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
112.500.000 kr.
Fermetraverð
942.211 kr./m2
Fasteignamat
93.650.000 kr.
Brunabótamat
79.070.000 kr.
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534561
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
06
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.

Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman.  Heimasíða verkefnisins smella hér.
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20

Íbúð 604 er glæsileg 4ra herbergja íbúð á 6. hæð, samtals 139,2 fm að stærð, þar af er íbúðin 119,3 fm, sérgeymsla 19,9 fm og svalir 6,1 fm. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu (B20) ásamt sérgeymslu (nr. 129).
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, opið og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi, sér þvottahús og anddyri með góðu skápaplássi.
Við hönnun íbúðarinnar hefur verið lögð sérstök áhersla á rými, birtu og þægilegt skipulag. Alrýmið er hjarta heimilisins þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda rúmgott og samfelldt rými með stórum gluggum sem hleypa inn mikilli náttúrubirtu. Úr alrýminu er útgengt á svalir sem njóta góðrar staðsetningar og bjóða upp á fallegt útsýni.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og tvö önnur svefnherbergi henta vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða. Baðherbergið er flísalagt með vandaðri innréttingu og sturtu. Sér þvottahús innan íbúðar.
Innréttingar eru af gerðinni Voké-III í litnum Kasmír grár, með Quartz borðplötum og vönduðum Miele heimilistækjum. Blöndunartæki og hreinlætistæki eru frá GROHE. Íbúðin er búin vélrænni loftræstingu sem stuðlar að góðum loftgæðum og auknum þægindum.
Athugið: Myndir í auglýsingu eru teknar í sýningaríbúð verkefnisins og eru ekki af þeirri íbúð sem hér er til sölu.

Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.

Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534561
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.920.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kolagata 1
_6__7868.jpg
Skoða eignina Kolagata 1
Kolagata 1
101 Reykjavík
125.1 m2
Fjölbýlishús
423
1038 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 93
Skoða eignina Kársnesbraut 93
Kársnesbraut 93
200 Kópavogur
77.1 m2
Fjölbýlishús
312
712 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 1A
Copy of Sæþór_vefur (1).jpg
Hallgerðargata 1A
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús
312
927 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9
Ibuð 204 - V9.jpg
Skoða eignina Vorbraut 9
Vorbraut 9
210 Garðabær
87.5 m2
Fjölbýlishús
312
1062 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin