Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2026

Sæmundargata 13

EinbýlishúsNorðurland/Sauðárkrókur-550
169.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
40.000.000 kr.
Fermetraverð
235.433 kr./m2
Fasteignamat
45.100.000 kr.
Brunabótamat
66.050.000 kr.
SB
Sunna Björk Atladóttir
Byggt 1892
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2132333
Landnúmer
143819
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Miðstöðvarlagnir endurnýjaðar árið 2020 / ástand annarra lagna ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað á efri hæð
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað á norðurhlið neðri hæðar
Þak
Þak bílskúrs endurnýjað árið2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignin Sæmundargata 13, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Þriggja til fjögurra herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr, upphaflega byggt árið 1892.
Húsið er skráð alls 169,9 fm. og skiptist þannig að íbúðarhúsið er 141,7 fm. og bílskúr 49,8 fm.
Leigulóð hússins er 451 fm.

Fasteignin skiptist í tvö herbergi, tvískipta stofu, eldhús, geymslu, forstofu, baðherbergi og snyrtingu.
Neðri hæð:

Komið er í parketlagða forstofu.
Tvískipt parketlögð stofa með gluggum í vestur.
Baðherbergi er með máluðu gólfi, hvítum tækjum og sturtuklefa. Inn af baðherbergi er tengi fyrir þvottavél. 
Eldhús er parketlagt, rauð innrétting. Inn af eldhúsi er geymsla/búr með hurð út í garð að sunnan.
Stigi upp á efri hæð frá eldhúsi.
Efri hæð:
Efri hæð er öll parketlögð. Þar eru tvö herbergi og hol.
Inn af öðru herberginu er snyrting.

Bílskúr er frágenginn og með geymslu inn af. Bílskúrshurð er rafdrifin.
Stórt steypt plan fyrir framan hús með snjóbræðslu.
Garður er afgirtur.
Geymsluskúr austan við húsið stendur á steyptum grunni en búið er að leggja í hann rafmagnslagnir og gera ráð fyrir niðurfalli. Skúrinn er óeinangraður.

Húsið er múrhúðað timburhús, áður klætt með járni. Það stóð áður við Bakaríisklauf á steyptum kjallara en var flutt á núverandi stað á fyrri hluta sjöunda áratugs síðustu aldar.
Þakjárn bílskúrs var endurnýjað árið 2020 en þakjárn hússins er eldra. Skipt hefur verið um glugga á neðri hæð norðurhliðar íbúðarhússins. Að öðru leyti eru gluggar gamlir og móða á milli glerja. Stafn hússins að vestan hefur verið klæddur.
Útihurðir að framan eru gamlar. Þakrennur vantar og þakkantar þarfnast viðhalds.
Miðstöðvarlagnir voru endurnýjaðar vorið 2020 ásamt lagnagrind sem er við eldhúsið. Rafmagnslagnir hafa verið endurnýjaðar á efri hæð. Ekki liggja fyrir upplýsingar um ástand frárennslislagna og annarra lagna og því óvíst um endingartíma þeirra. 
Athygli áhugasamra er vakin á því að hér ræðir um gamalt hús sem þarfnast viðhalds, upphaflega byggt 1892. 

Eignin selst í því ástandi sem hún er í en sejandi er dánarbú og því liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um eignina en sjónskoðun fasteignasala. 

Vakin er athygli á því að eignin er orðin 100 ára og er því friðuð skv. 29. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Öll hús og mannvirki sem eru 100 ára eða eldri eru friðuð, sbr. 29. grein laga um menningarminjar nr. 80/2012, https://www.althingi.is/altext/stjt/2012.080.html
Óheimilt er að raska friðuðum húsum og mannvirkjum, spilla þeim eða breyta, rífa þau eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofnunar Íslands. Miðað er við að leitað sé leyfis stofnunarinnar áður en ráðist er í allar byggingaleyfisskyldar framkvæmdir  og sömu gögn send Minjastofnun til umsagnar og senda þarf til byggingarfulltrúa. Í kafla 2.3.5 byggingarreglugerðar koma fram þær framkvæmdir sem undanþegar eru byggingarleyfi, https://www.byggingarreglugerd.is/#reglugerd
Halda má við friðuðum húsum, mannvirkjum og mála þau án sérstaks samráðs við Minjastofnun, sé ekki um byggingaleyfisskyldar framkvæmdir að ræða.

Í lögum um fasteignakaup er lögð áhersla á skoðunarskyldu kaupanda. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vandlega og afla sér aðstoðar sérfræðinga  við frekari skoðun sé þess þörf að þeirra mati. Sú áhætta fylgir kaupum á fasteignum að ekki er hægt að átta sig á ástandi á þeim hlutum eignarinnar sem ekki sjást við venjulega skoðun svo sem fráveitu-, vatns- og miðstöðvarlögnum svo og þaki eftir atvikum.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/07/202435.700.000 kr.41.267.000 kr.169.9 m2242.889 kr.Já
09/02/202224.350.000 kr.36.000.000 kr.169.9 m2211.889 kr.Já
25/10/201211.200.000 kr.3.500.000 kr.168.7 m220.746 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarbraut 1F
Bílskúr
Skoða eignina Heiðarbraut 1F
Heiðarbraut 1F
230 Reykjanesbær
181,3 m2
Raðhús
514
457 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Bylgjubyggð 12 Ólafsfirði
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:21. okt. kl 16:30-17:00
Bylgjubyggð 12 Ólafsfirði
625 Ólafsfjörður
165 m2
Einbýlishús
615
315 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Hlégerði 16
Bílskúr
Opið hús:21. okt. kl 17:15-18:00
Skoða eignina Hlégerði 16
Hlégerði 16
200 Kópavogur
178,8 m2
Einbýlishús
624
749 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Skoða eignina Garðbraut 76
Bílskúr
Skoða eignina Garðbraut 76
Garðbraut 76
250 Garður
159,4 m2
Einbýlishús
4
501 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin