Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
74 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.200.000 kr.
Fermetraverð
840.541 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
29198282_1
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir og svalir frá stofu
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *PENTHOUSE Í FLAMENCA VILLAGE, PLAYA FLAMENCA* *ÞAKSVALIR MEÐ SJÁVARÚTSÝNI* *SUNDLAUGAR, LÍKAMSRÆKT, GRÓIÐ UMHVERFI Á LOKUÐU SVÆÐI* *LYFTA OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU*

Velkomin í þessa vel skipulögðu og björtu þakíbúð í hinum vinsæla Flamenca Village íbúðakjarna. Íbúðin var byggð árið 2021 og er algjörlega sem ný. Lokaður kjarni, gróið og fallegt umhverfi, göngustígar, hlaupabrautir, sundlaugar, barnalaugar, líkamsræktraraðstaða, kaffihús/bar og ótal margt fleira sem gerir þetta án efa að flottasta íbúðahverfinu á Costa Blanca svæðinu. Frábær staðetning í Playa Flamenca, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín göngufæri á Playa Flamenca ströndina, 10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýlega og flotta íbúð í frábæru umhverfi. 

Upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 


Nánari lýsing:
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, þar af eitt með beinu aðgengi að stórum svölum sem snúa í vestur með útsýni yfir sundlaugarsvæðið. Glæsilegt flísalagt baðherbergið er með sturtu og gólfhita. Opið eldhúsið er fullbúið nútímalegum og vönduðum heimilistækjum. Út frá eldhúsi er sér þvottahús með þvottavél, þurrkara, vatnshitara og fullkomnu vatnssíunarkerfi sem gerir allt kranavatn drykkjarhæft og laust við kalk. Íbúðinni fylgir einnig sér geymslurými með nægu plássi fyrir ferðatöskur, golfbúnað eða aðra muni.

Frá stofunni liggur stigi innanhúss upp á stórar 82 fm einkaþaksvalir. Þar er gott pláss fyrir borðkrók, setustofu, sólbekki, útieldhús og útisturtu. Útsýni er vítt til allra átta og nær frá Torrevieja í norðri til La Manga í suðri, með bæði sjóinn og sundlaugarsvæðið í augsýn.

Íbúðinni fylgir einkabílastæði í lokaðri bílageymslu og sér geymsla, sem hvort tveggja er auðvelt að komast að með lyftu eða um stigahús. Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.

Íbúðin er seld fullbúin húsgögnum og með fallegum innréttingum – tilbúin til innflutnings strax.

Flamenca Village býður upp á fjölbreytta fyrsta flokks sameiginlega aðstöðu, þar á meðal fjögur sundlaugarsvæði, þar af tvö sem eru hituð yfir vetrarmánuðina, barnalaugar og upphitaða nuddpotta. Þar er einnig leikvöllur, vel útbúin líkamsræktarstöð með búningsklefum, sturtum og gufubaði, auk notalegs chill-out bars sem býður upp á drykki og léttar veitingar.

Með sólarhringsöryggisgæslu og sérstöku þjónustuteymi sem sér um að viðhalda svæðinu í hæsta gæðaflokki geturðu notið öryggis og þæginda allt árið um kring.

Þessi einstaka eign er staðsett á frábærum stað í hjarta Playa Flamenca, í örstuttri göngufjarlægð frá fallegum ströndum, matvöruverslunum, bakaríum, apótekum og fjölbreyttum veitingastöðum. Hinn vinsæli laugardagsmarkaður og stóra verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard eru einnig aðeins steinsnar frá.

Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í örstuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýlega og vandaða íbúð á þessum vinsæla stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.

Verð 429.000 evrur (62.200.000 ISK miðað við gengi 1Evra=145 ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við aðstoðum okkar viðskiptavini við greiðslumatið.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: bílakjallari, sundlaugargarður, air con, svalir, þakverönd, nálægt strönd, lyfta, sjávarútsýni,
Svæði: Costa Blanca, Playa Flamenca, Flamenca village,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
29198282_1

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbrún 30
Skoða eignina Hraunbrún 30
Hraunbrún 30
220 Hafnarfjörður
65 m2
Fjölbýlishús
212
845 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 9
Hleðslustöð
Opið hús:12. sept. kl 14:00-15:00
Skoða eignina Hnjúkamói 9
Hnjúkamói 9
815 Þorlákshöfn
60.4 m2
Fjölbýlishús
211
803 þ.kr./m2
48.500.000 kr.
Skoða eignina Bólstaðarhlíð 40
Opið hús:08. sept. kl 17:30-18:00
Bólstaðarhlíð 40
105 Reykjavík
69.2 m2
Fjölbýlishús
312
866 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 9
Hleðslustöð
Opið hús:12. sept. kl 14:00-15:00
Skoða eignina Hnjúkamói 9
Hnjúkamói 9
815 Þorlákshöfn
80.9 m2
Fjölbýlishús
312
740 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin