Munkaþverárstræti 16 - Skemmtilegt hús með tveimur íbúðum og útleigumöguleika í kjallaranum á horni Munkaþverárstrætis og Krabbastígs.
Húsið er með svonefndu Mansard-þaki og tveimur stórum kvistum til austurs og vesturs sem setur skemmtilegan svip á húsið
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti:
Íbúð á neðri hæð, skráð 76,3 m²: Forstofa/sér inngangur, eldhús, stofa, setustofa, baðherbergi og svefnherbergi.
Séreign neðri hæðar í kjallara er stúdíóíbúð, baðherbergi og tvær geymslur, önnur undir stiga og hin inn af þvottahúsi.
Íbúð á eftri hæð, skráð 69,6 m²: Gangur, eldhús, baðherbergi, stofa og tvö svefnherbergi.
Séreign efri hæðar í kjallara er rúmgóð geymsla, staðsett í suðvesturhorni.
Íbúð á neðri hæð:
Forstofa er með nýlegri útidyrahurð og lökkuðum gólffjölum.
Eldhús, hvíttuð eikar innrétting með flísum á milli skápa, innbyggð 45 cm uppþvottavél og stæði fyrir tvöfaldan ísskáp.
Stofa er með lökkuðum gólffjölum og gluggum til tveggja átta.
Setustofa er skemmtilegt rými með lökkuðum gólffjölum, kamínu og glugga með útsýni til austurs.
Svefnherbergið er með harðparketi á gólfi og stórum hvítum skáp
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu, wc, sturtu og opnanlegum glugga.
Íbúðinni fylgir studíó íbúð í kjallara með parketi á gólfi og lítilli eldunaraðstöðu. Baðherbergi var standsett árið 2021.
Íbúð á efri hæð:
Sameiginlegur inngangur er á austurhlið hússins og þar er dúkur á gólfi.
Komið er inn á gang með dökku harð parketi á gólfi. Þar er lúga í lofti upp á geymsluloft.
Eldhúsið er með dökku harð parketi á gólfi og ljósri eldri innréttingu og nýlegum efri skápum. Skemmtilegt útsýni til austurs úr eldhúsi.
Stofan er með lökkuðum gólffjölum og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru tvö, harðparket á gólfum og í öðru þeirra er stór hvítur fataskápur.
Baðherbergi er með epoxy efni á gólfi, handlaug, wc, sturtuklefa og opnanlegum glugga.
Annað:
- Í kjallara er sameiginlegt þvottahús
- Þak var endurnýjað 2018.
- Hluti af gluggum og gleri hefur verið endurnýjað.
- Frárennsli sett í plast í gólfplötu og út fyrir húsvegg.
- Húsið málað að utan 2021
- Árið 2023 var sett ný einangrun í stærstan hluta lofts íbúðar á neðri hæð.
- Sér mælar fyrir hitaveitu og rafmagn.
- Heildarstærð eignar er skráð 145,9 m² en nýtanlegir fermetrar eru fleiri, aðeins 13,7 m² í kjallara eru skráðir.
- Möguleiki er að selja neðri hæðina sér.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.