Fasteignaleitin
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-14:00
Skráð 11. nóv. 2026

Álfatún 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
123.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
800.810 kr./m2
Brunabótamat
73.900.000 kr.
Byggt 1982
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20578471
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Sérlega falleg, talsvert endurnýjuð 123,5 fermetra útsýnisíbúð með stórum bílskúr í fjórbýli. Frábær staðsetning. Íbúðin sjálf er 100,7 fermetrar en bílskúrinn er 22,8 fermetrar. Á jarðhæð eru tvær geymslur sem ekki eru skráðar inní fermetratölu eignarinnar. Svefnherbergin eru þrjú samkvæmt teikningu en eitt þeirra er nýtt sem fataherbergi, rúmgott og bjart alrými með miklu útsýni, arin í stofu, nýleg stór eldhúsinnrétting, baðherbergi með sturtu. Fallegt nýlegt parket á allri íbúðinni. Þvottahús á hæðinni, stór geymsla í kjallara, rúmgóður bílskúr. Falleg eign, frábær staðsetning, leikskóli í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.

Húsið er hluti af vinsælum keðjuhúsum við Álfatún. Þeim megin sem komið er að húsinu eru bílskúrar og stigagangur á jarðhæðinni þar sem gengið er inn í húsið, en húsið er tvær hæðir auk jarðhæðarinnar. Stigagangur er vel um genginn og fær góða umhirðu, en fyrirhugað er að mála stigagang á næsta ári. Þegar komið er upp hálfa hæð eru dyr út í garð hinu megin við húsið, þar sem eru sólpallar íbúða á annarri hæð hússins. Garðurinn hefur fengið gott viðhald og umhirðu undanfarin ár. Gengið er upp eina og hálfa hæð til viðbótar að íbúð 301, en tvær íbúðir eru á hverri hæð auk sameiginlegs þvottahús sem íbúðir hæðarinnar deila.
Þegar komið er inn í íbúðina er stór fataskápur með speglum til hægri og veggur sem skilur forstofu frá stofu á vinstri hönd. Stofan er mjög björt með gluggum í átt að svölum til suðurs, en í innra horni stofunnar er glæsilegur arin. Opið er á milli stofu og eldhús, en eldhús er nýlegt, með fallegri hvítri innréttingu og hvítum borðplötum. Eldhúsinnréttingin er annars vegar u-laga innrétting og hins vegar innrétting á heilum vegg sem nær til lofts, en þessi útfærsla kemur mjög vel út í þessu rými þar sem birta og glæsilegt útsýnið nýtur sín til fulls. Gluggar eru á heilum vegg og mikið útsýni yfir Fossvogsdalinn og til Esjunnar. Gott pláss fyrir borðstofuborð er við glugga við hlið eldhúsinnréttingar.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt gólf og veggir, með innréttingu og handklæðaofni. Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergi með stórum fataskáp, minna herbergi er rúmgott og bjart með stóru fataherbergi innaf. Það herbergi var áður þriðja herbergið en auðvelt er að breyta þessu til baka.
Nýtt parket er á öllum megin gólfum íbúðarinnar, nýlegt gler í gluggum. Á jarðhæð er stór geymsla sem tilheyrir íbúðinni, ásamt annarri minni, sem ekki virðast vera skráðar inní fermetratölu íbúðarinnar. Bílskúrinn er 25,8 fermetrar. Húsið fær góða umhirðu hjá samhentum eigendahópi. Þakið er skoðað reglulega og yfirfarið, en til stendur að endurgera þakkant á næsta ári þegar safnað hefur verið fyrir framkvæmdinni. Húsið var múrviðgert og málað fyrir tveimur árum. Innan íbúðar hafa allir ofnar verið endurnýjaðir og rafmagnstafla er ný, auk nýs eldhúss og gólfefna sem áður er talið.

Sérlega björt og falleg eign, vel heppnuð endurnýjun, frábær staðsetning.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10 -303
Bílastæði
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Hafnarbraut 10 -303
200 Kópavogur
117,6 m2
Fjölbýlishús
423
935 þ.kr./m2
109.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10 -302
Bílastæði
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Hafnarbraut 10 -302
200 Kópavogur
131,5 m2
Fjölbýlishús
423
935 þ.kr./m2
122.990.000 kr.
Skoða eignina Brattholt 3
Efsta hæð
Opið hús:12. nóv. kl 16:15-16:45
Skoða eignina Brattholt 3
Brattholt 3
220 Hafnarfjörður
101,3 m2
Fjölbýlishús
312
674 þ.kr./m2
68.300.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 7
Hleðslustöð
Opið hús:14. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Mosagata 7
Mosagata 7
210 Garðabær
142,4 m2
Fjölbýlishús
413
737 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin